Um listina að fagna því sem fór vel

  • 12. febrúar 2021
  • Fréttir
Föstudagspistill Hinna Sig

Ég vil byrja á því að þakka fyrir góð viðbrögð við pistlinum í síðustu viku þar sem ég ”berháttaði” mig fyrir framan alþjóð. En nú að næsta máli.

Eitt sem allir knapar þurfa að læra, líkt og aðrir íþróttamenn að sjálfssögðu er að klappa sér á öxl þegar vel er gert, fagna því sem fer vel.

Þetta er atriði sem mér finnst mjög mikilvægt í allri þjálfun og keppni, og er eitthvað sem hefur svo djúp og mikil áhrif á hugarástand manns, og þar með árangurinn í heild.

Þannig er að heilinn í okkur bregst við og skráir niður öll atvik sem framkalla sterka tilfinningu. Þórður húsvörður (sem ég hef sagt ykkur frá hér í fyrri pistli) hefur það hlutverk að skrá allar upplifanir sem við upplifum og heldur þeim vel og örugglega til haga.

Öll atvik sem framkalla sterka tilfinningu hafa greiða leið í gagnasafnið og sinna sínu hlutverki þar.

Ímyndum okkur golfspilara sem er að æfa teighöggin sín á æfingasvæðinu.

Hann slær eitt högg, þráðbeint og langt…. tókst

Slær annað, þráðbeint og langt…. tókst

Þriðja, þráðbeint og langt… tókst

Fjórða aðeins skakkur til vinstri…. hristir hausinn og segir andskotinn!!!!

Fimmta þráðbeint og langt… tókst

Sjötta þráðbeint og langt… tókst

Sjöunda skakkur til vinstri, andskotinn!!!!

Áttunda beint ok,

Níunda skakkur til vinstri…. andskotinn.

Sjáiði ferlið? Tíðnin á skökku höggunum fer hækkandi, þeim fjölgar. Málið er að duglegur golfspilari er vanur að slá beint högg og það framkallar enga sérstaka tilfinningu, bara ”dagur á skrifstofunni”, og svo kemur eitt skakkt högg og þá kemur sterk tilfinning (pirringur). Þórður hrekkur við og safnar þessu í gagnasafnið og byrjar að sýna manni þetta eina skakka högg aftur og aftur. Þeim fjölgar og líkaminn á okkur fer að hálfundirbúa sig fyrir misheppnað högg.

Skiljiði pointið sem ég er að reyna að sýna?

Nú kemur það mikilvæga fyrir okkur knapa, ég er ekki að segja að við þurfum að brjótast út í brjáluð fagnaðarlæti hvert skipti sem við náum að framkvæma þokkalegan krossgang eða hvað sem við erum að sýsla við, en ég lærði trixið að gera vissa hreyfingu og brosa þegar mér tekst vel til. Þetta framkallar hjá mér góða tilfinningu sem Þórður húsvörður skráir, og því fleiri ”skjöl” um árangur sem við eigum því hærra verður sjálfstraustið og okkur gengur betur.

Það mikilvæga er að læra að bregðast við og framkalla sterka góða tilfinningu þegar hlutirnir takast, og leiða hjá sér þegar meira þegar þeir takast ekki. Auðvitað að pæla í því og læra af þeim, en ekki framkalla sterka tilfinningu sem gerir mann meira viðbúinn mistökunum.

Þetta er ráð mitt til ykkar í dag,  og ég þykist viss um að þegar þið lærið að temja ykkur þetta mun þetta hjálpa ykkur svakalega mikið.

Fagna þegar vel gengur, leiða hitt hjá sér en ekki öfugt eins og við erum stundum gjörn á að gera.

Eigið geggjaða helgi 🙂

Kv Hinni

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link