Umsókn um Landsmót
Landssamband hestamannafélaga auglýsir eftir umsóknum hestamannafélaga vegna Landsmóta 2020 og 2022. Umsóknum skulu fylgja greinargerð, teikningar af viðkomandi svæði og stutt lýsing á staðarháttum. Nauðsynlegt er að umsókn fylgi fjöldi hesthúsaplássa og gistirýma í nágrenni við mótssvæði.
Umsækjendum er bent á að kynna sér vel lög og reglugerðir LH er varða undirbúning og framkvæmd landsmóta sem má fi nna í lögum og reglum á vef LH, www.lhhestar.is.
Eftir að umsóknarfresti lýkur munu stjórnir LH og LM boða til fundar á mótsvæðum umsækjenda. Á fundina skulu umsóknaraðilar mæta ásamt fulltrúum viðkomandi sveitastjórnar. Á fundinum skal fara fram kynning á svæðinu og settar fram af hálfu umsóknaraðila, hugmyndir að rekstrarfyrirkomulagi mótanna.
Umsóknarfrestur rennur út 1. desember 2015. Nánari upplýsingar veitir skrifstofa LH, 514-4030 eða [email protected].
Styttu haustið með EiðfaxaTV