Umsóknarfrestur í nám við Hóla að renna út
Þessi glæsilegi hópur útskrifaðist með BS-gráðu í reiðmennsku og reiðkennslu núna fyrir helgina. Námið er fullt 180 ECTS nám, í þrjú ár og er byggt upp af bæði verklegum og bóklegum námskeiðum. Einnig er mögulegt að útskrifast með leiðbeinendapróf (eftir eins árs nám) eða diplómu í tamningum (eftir tveggja ára nám).
Frestur til að sækja um vegna inntöku í hestafræðideild nú í haust rennur út á miðnætti annað kvöld (4. júní) . Sótt er um hérna á netinu.
Inntökupróf í reiðmennsku verða svo haldin í næstu viku.
|