Umsóknir um styrki úr Stofnverndarsjóði
Fagráð í hrossarækt starfar samkvæmt 15 gr. búnaðarlaga nr. 70/1998. Fagráð fer, meðal annarra verkefna, með stjórn Stofnverndarsjóðs sem starfræktur er samkvæmt ákvæðum í sömu lögum og reglugerð nr. 1123/2015 um sama efni.
Verkefni sjóðsins eru að veita styrki til þróunar- og rannsóknaverkefna í hrossarækt. Verkefnin skulu stuðla að viðhaldi verðmætra eiginleika í íslenska hrossastofninum, verndun erfðafjölbreytileika stofnsins og/eða auka þekkingu á stofninum og útbreiðslu hans. Fagráð í hrossarækt auglýsir eftir umsóknum ár hvert og tekur ákvörðun um styrkveitingar.
Fagráð tekur ákvörðun um styrkveitingar í ágúst 2019. Nánari upplýsingar fást hjá Bændasamtökunum.
Frestur til að skila inn umsóknum er til 20. júlí 2019 og skal umsóknum skilað til:
Fagráð í hrossarækt, Bændahöllinni v/Hagatorg, 107 Reykjavík.
Fagráð í hrossarækt.
Styttu haustið með EiðfaxaTV