Undanþágu hafnað

  • 15. maí 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Tilkynning vegna röntgenmynda af hækilliðum stóðhesta.

Vegna verkfalls dýralækna sem starfa hjá Matvælastofnun hefur aflestur röntgenmynda af hækilliðum stóðhesta og birting niðurstaðna í WorldFeng legið niðri. Þetta er forsenda þess að hægt sé að skrá stóðhesta sem eru 5 vetra og eldri á kynbótasýningar.

Bændasamtök Íslands sóttu um undanþágu frá verkfalli í þeim tilgangi að sérgreinadýralækni hrossasjúkdóma væri heimilt að lesa úr röntgenmyndum af stóðhestum og birta niðurstöður í WorldFeng. Þeirri beiðni var hafnað án rökstuðnings. Fagráð í hrossarækt harmar þessa niðurstöðu en hvetur ennfremur alla eigendur 5. vetra hesta að láta mynda þá hesta sem stefnt er með í dóm, þannig að sérgreinadýralæknir hrossasjúkdóma geti greint myndirnar um leið og verkfall leysist.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link