Suðurlandsdeildin Undirbúningur hafinn fyrir Suðurlandsdeildina

  • 13. október 2022
  • Fréttir
Undirbúningur er hafinn fyrir sjöunda keppnistímabil Suðurlandsdeildarinnar í hestaíþróttum
„Auglýst verður eftir liðum fljótlega og með umsókn þarf að skila fullskipuðu liði, 3 atvinnumönnum og 3 áhugamönnum. Þau lið sem eiga tryggt sæti í deildinni þurfa að láta vita á næstu vikum ef þau hyggjast ekki taka þátt 2023. Nú liggur fyrir spurningakönnun hjá liðsstjórum liðanna og í framhaldi af henni verða auglýstar dagsetningar fyrir komandi tímabil. Það er útlit fyrir virkilega sterka deild líkt og síðustu sex ár og er gríðarleg stemming fyrir komandi tímabili,“ kemur fram í tilkynningu frá deildinni.
Þau lið sem eiga keppnisrétt eru:
  • Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún
  • Byko
  • Efsta-Sel
  • Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð
  • Húsasmiðjan
  • Krappi
  • Nonnenmacher
  • Slippfélagið
  • Smiðjan Brugghús
  • Töltrider
  • Vesturkot
  • Vöðlar/Snilldarverk/Sumarliðabær

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link