Undirbúningur vegna HM úrtöku
„Hafliði Halldórsson liðsstjóri íslenska landsliðsins í hestaíþróttum kynnir námskeið dagana 6.-7. apríl n.k. fyrir áhugasama vegna þjálfunar og undirbúnings fyrir HM úrtöku. Þjálfarar verða þær Rúna Einarsdóttir og Olil Amble og hefjast námskeiðin kl. 9:00 báða dagana.
Athugið að þátttaka í þessu námskeiði er ekkert skilyrði fyrir þátttöku í úrtökunni sjálfri.
Skráning er hafin og er tekið á móti skráningum á netfangið [email protected]. Skráningu lýkur 4. apríl.
Hafliði Halldórsson liðsstjóri
Landsliðsnefnd LH,“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH