Ungfolaskoðun á Fljótsdalshéraði
Þorvaldur Kristjánsson, ábyrgðarmaður hrossaræktar hjá RML, verður á ferðinni á Fljótsdalshéraði þriðjudaginn 5. maí. Boðið verður upp á ungfolaskoðanir þennan dag og tekur Einar Ben Þorsteinsson á móti skráningum í síma 896-5513.
Einnig verður Þorvaldur með eftirfarandi fyrirlestur: Ganghæfni íslenskra hrossa – Áhrif sköpulags og skeiðgens.
Fyrirlesturinn verður haldinn á Gistihúsinu Egilsstöðum og hefst klukkan 20:00 sama dag (5. maí).
Þetta kemur fram í frétt frá RML.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH