Ungfolasýning
Lukku-Láki, sonur Lukku frá Stóra-Vatnsskarði og Álfs frá Selfossi, tók þátt í ungfolasýningu HS fyrir nokkrum árum
Árleg ungfolasýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður laugardaginn 12. apríl í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli í tengslum við Stóðhestaveislu Hrossaræktar.is og Horse Expo 2014. Fyrirkomulag ungfolasýningarinnar verður með svipuðu sniði og í áður. Starfandi kynbótadómarar munu taka út folana bæði fyrir sköpulag og hreyfingu. Rétt til þátttöku eiga folar fæddir árið 2011 og 2012. Sköpulagsmat hefst kl. 11:30. Dómarar raða efstu fimm folunum í hvorum flokki. Áhorfendur velja síðan álitlegasta folann í hverjum flokki. Efstu dómaravöldu folarnir úr hvorum flokki munu koma fram á stóðhestaveislu Hrossaræktar.is um kvöldið.
Hestarnir verða annaðhvort að vera járnalausir eða járnaðir kynbótajárningu. Ekki er heimilt að mæta með fola járnaða eingöngu á framfótum.
Síðasti skráningardagur er sunnudagurinn 6.apríl. Skráningargjald er 3.500 kr fyrir félagsmenn en 4.000 kr fyrir aðra. Skráningargjald greiðist á sýningarstað með reiðufé. Tekið er við skráningu á sýninguna á netfangið [email protected]
Félagsmenn og aðrir áhugamenn um hrossarækt eru hvattir til að mæta á þennan árlega viðburð og berja ungar ræktunarstjörnur framtíðar augum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH