UNGLINGALANDSMÓT 2023
Unglingalandsmót 2023 fer fram um verslunarmannahelgina 3. – 6. ágúst á Sauðárkróki. Öll ungmenni á aldrinum 11 – 18 ára geta skráð sig til leiks. Keppt verður í hestaíþróttum laugardaginn 5.ágúst á félagssvæði Skagfirðings, Sauðárkróki.
Skráning fer fram hér https://www.sportabler.com/shop/umfi/unglingalandsmot – Hægt er að hafa samband við Unni Rún á [email protected] fyrir nánari upplýsingar.
Keppt verður í
11 – 13 ára Tölt T7.
11 – 13 ára Fjórgangur V5.
14 – 18 ára Tölt T3.
14 – 18 ára Fjórgangur V2.
14 – 18 ára Fimmgangur F2.
Frítt er fyrir þátttakendur úr Skagafirði (UMSS) en mótsgjald er annars kr. 8.900.- og innifalið í því er þátttaka í öllum keppnisgreinum á mótinu, aðgangur að öllum viðburðum á mótinu, aðgangur að öllum sundlaugum í Skagafirði. Aðgangur að tjaldsvæðið mótsins fyrir alla fjölskylduna er einnig innifalinn. .
Sambandsaðilar UMFÍ styrkja sumir þátttakendur á sínu svæði að hluta eða öllu leyti. Þess vegna er mikilvægt að velja rétt íþróttahérað við skráningu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts