Ungur nemur, gamall temur
Ungur nemur, gamall temur á vel við hjá Kamban frá Húsavík og Ragnari Snæ Viðarssyni. Kamban sem er þrautreyndur keppnishestur og á farsælan feril að baki er með nýjan knapa sem er að stíga sín fyrstu skref á keppnisvellinum. Ragnar Snær Viðarsson stýrir honum á LM2018 og áttu þeir góðan dag í dag þegar þeir sigruðu B-úrslitn í barnaflokki með einkunina 8,73. Þeir mæta því í A-úrslit á sunnudaginn.
Heildarniðurstöður:
9. Ragnar Snær Viðarsson / Kamban frá Húsavík 8,73
10. Kolbrún Sif Sindradóttir / Sindri frá Keldudal 8,71
11-12. Matthías Sigurðsson / Íkon frá Hákoti 8.69
11-12. Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal / Nútíð frá Leysingjastöðum II 8,69
13. Þórgunnur Þórarinsdóttir / Grettir frá Saurbæ 8,65
14. Egill Ari Rúnarsson / Fjóla frá Árbæ 8,64
15. Elva Rún Jónsdóttir / Vökull frá Hólabrekku 8,59
16. Eydís Ósk Sævarsdóttir / Selja frá Vorsabæ 8,51
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH