Síðsumarsýning Vesturlands fór fram daganna 15. – 18. ágúst sl. á Mið-Fossum og voru 84 hross skráð til dóms.
Þar hlaut hæstu aðaleinkunn 4 vetra stóðhestur, Vaðall frá Akranesi sem er undan Aðli frá Nýjabæ og Þræsingu frá Garðabæ, undan Hrafni frá Holtsmúla og Tinnu frá Austurkoti. Vaðall fékk einkunnina 8,30 fyrir byggingu og 8,40 fyrir hæfileika, sem ennfremur var hæsti hæfileikadómur sem hross hlaut á sýningunni. Einkunnina 9 fékk Vaðall fyrir vilja og geðslag og 8,5 fyrir tölt, stökk og fegurð í reið. Reiknast dómur Vaðals í 10.-14. Sæti yfir hæstu dóma sem 4 vetra stóðhestar hafa hlotið, og skipar þar sæti með gæðingunum Illingi frá Tóftum, Dalvari frá Auðsholtshjáleigu og Eldi frá Torfunesi sem hlaut sömu aðaleinkunn á Landsmóti í sumar. Sýnandi Vaðals er Karen Líndal Marteinsdóttir.
Þá sýndi Jakob Svavar Sigurðsson 5 vetra Orradóttu að nafni Bót frá Skeiðvöllum undan Byssu frá Hala (ae. 8,21) undan Þokka frá Garði og Stóru-Jörp frá Hala. Hlaut Bót 8,14 fyrir byggingu og afar jafnan hæfileikadóm 8,32.
Þriðju hæstu einkunn hlaut glæsileg klárhryssa, Hamborg frá Feti. Fyrir byggingu fékk Hamborg einkunnina 8,18 og fyrir hæfileika 8,11, þar af hlaut hún einkunnina 9 fyrir stökk, vilja og geðslag og fegurð í reið. Hamborg á báðar ættir sínar að rekja til Orra , en hún er undan Stíganda frá Leysingjastöðum II, sem er undan Andvara frá Ey I, og Orradótturinni Álaborg frá Feti. Sýndandi Hamborgar var Guðmundur Björgvinsson.
Meðfylgjandi eru úrslit síðsumarssýningarinnar.
Fæðingarnr. Hross Sýnandi
Sköpulag
Kostir
Aðaleinkunn
Stóðhestar 7 vetra og eldri
1.sæti
IS2003186944 Arfur frá Ásmundarstöðum Daníel Jónsson
Sköpulag: 8,26
Kostir: 8,02
Aðaleinkunn: 8,11
2.sæti
IS2003155414 Nemi frá Grafarkoti Guðmundur F. Björgvinsson
Sköpulag: 7,91
Kostir: 8,15
Aðaleinkunn: 8,06
Stóðhestar 6 vetra
1.sæti
IS2005135517 Röskur frá Nýjabæ Guðmundur F. Björgvinsson
Sköpulag:7,83
Kostir: 7,8
Aðaleinkunn: 7,81
Stóðhestar 5 vetra
1.sæti
IS2006135809 Laufi frá Skáney Haukur Bjarnason
Sköpulag: 8,17
Kostir: 8,03
Aðaleinkunn: 8,09
2.sæti
IS2006182550 Týr frá Skálatjörn Jakob Svavar Sigurðsson
Sköpulag: 8,13
Kostir: 8,01
Aðaleinkunn: 8,06
3.sæti
IS2006137828 Kubbur frá Læk Jakob Svavar Sigurðsson
Sköpulag: 8,28
Kostir: 7,82
Aðaleinkunn: 8
Stóðhestar 4 vetra
1.sæti
IS2007135069 Vaðall frá Akranesi Karen Líndal Marteinsdóttir
Sköpulag: 8,3
Kostir: 8,4
Aðaleinkunn: 8,36
7 vetra hryssur og eldri
1.sæti
IS2004281511 Hneta frá Koltursey Daníel Jónsson
Sköpulag: 8,15
Kostir: 8,13
Aðaleinkunn: 8,14
2.sæti
IS2002287170 Fjöður frá Gamla-Hrauni Daníel Jónsson
Sköpulag: 8,13
Kostir: 8,03
Aðaleinkunn: 8,07
3.sæti
IS2004286012 Stjarna frá Stóra-Hofi Daníel Jónsson
Sköpulag: 8,13
Kostir: 8,01
Aðaleinkunn: 8,06
6 vetra hryssur
1.sæti
IS2005286901 Hamborg frá Feti Guðmundur F. Björgvinsson
Sköpulag: 8,18
Kostir: 8,11
Aðaleinkunn: 8,14
2.sæti
IS2005201041 Auður frá Skipaskaga Reynir Aðalsteinsson
Sköpulag: 8,29
Kostir: 8,01
Aðaleinkunn: 8,12
3.sæti
IS2005225049 Stroka frá Kiðafelli Daníel Jónsson
Sköpulag: 8,08
Kostir: 8,1
Aðaleinkunn: 8,09
5 vetra hryssur
1.sæti
IS2006286686 Bót frá Skeiðvöllum Jakob Svavar Sigurðsson
Sköpulag: 8,14
Kostir: 8,32
Aðaleinkunn: 8,25
2.sæti
IS2006286300 Frigg frá Pulu Daníel Jónsson
Sköpulag: 7,93
Kostir: 8,16
Aðaleinkunn: 8,07
3.sæti
IS2006255081 Saga frá Þorkelshóli 2 Björn Haukur Einarsson
Sköpulag: 8,24
Kostir: 7,82
Aðaleinkunn: 7,99
4 vetra hryssur
1.sæti
IS2007201045 Viska frá Skipaskaga Reynir Aðalsteinsson
Sköpulag: 8,26
Kostir: 7,75
Aðaleinkunn: 7,96
2.sæti
IS2007256298 Gæska frá Steinnesi Benedikt Þór Kristjánsson
Sköpulag: 7,81
Kostir: 7,76
Aðaleinkunn: 7,78
3.sæti
IS2007288908 Njála frá Efsta-Dal II Guðmundur F. Björgvinsson
Sköpulag: 8,03
Kostir: 7,6
Aðaleinkunn: 7,77