„Unnið að því að sameina bændur undir einum samtökum“

  • 27. febrúar 2024
  • Fréttir

Gunnar Þorgeirsson Ljósmynd: Bændasamtök Íslands

Gunnar Þorgeirsson frambjóðandi til formanns Bændasamtaka Íslands

Gunnar Þorgeirsson, garðyrkjubóndi Ártanga, og Trausti Hjálmarsson, sauðfjárbóndi og hrossaræktandi í Austurhlíð, hafa gefið kost á sér í embætti formanns Bændasamtaka Íslands.

Gunnar Þorgeirsson hefur gengt embættinu frá 2020 og sækist eftir endurkjöri. Trausti Hjálmarsson hefur verið formaður deildar sauðfjárbænda frá 2022 en lét af því embætti á Deildafundum búgreina 12. og 13. febrúar síðastliðinn.

Kosið verður um formann rafrænt frá miðnætti 1. mars til miðnættis 2. mars. Slóð á kosningasíðuna verður gerð aðgengileg á heimasíðu Bændasamtakanna, bondi.is, og send félagsmönnum í tölvupósti þegar kosning hefst. Félagsmenn BÍ sem greiddu félagsgjöld fyrir 31. desember 2023 hafa kosningarétt. Fleiri en einn geta haft kosningarétt frá sama búi. Hver og einn getur kosið oftar en einu sinni, en einungis síðasta atkvæðið gildir. Nái enginn frambjóðandi meira en fimmtíu prósent atkvæða þarf að kjósa aftur 5. og 6. mars.

Blaðamaður Eiðfaxa heyrði í frambjóðendunum og lagði fyrir þá þrjár spurningar er ættu að gefa hrossabændum svör um þeirra sýn á Búgreinadeild hrossabænda og málefnum BÍ. Trausti reið á vaðið en svör Gunnars við sömu spurningum birtast hér fyrir neðan.

Gunnar Þorgeirsson er garðyrkju­ bóndi í Ártanga í Grímsnes­ og Grafningshreppi, en hann stofnaði gróðrarstöðina ásamt eiginkonu sinni, Sigurdísi Eddu Jóhannesdóttur, árið 1986.

Hvernig horfir starf BÍ við þér og þá sérstaklega framtíðarsýn á Búgreinadeild hrossabænda?

Það er mikilvægt að við tölum einni röddu sem bændur á Íslandi í hvaða grein sem er í starfsumhverfi bænda. Þar blandast til dæmis einföldun regluverks og skilyrði til athafna á grunni atvinnufrelsis. Regluverkið má ekki vera það íþyngjandi að starfsemin nái ekki fram sjálfstæði einstaklingsins til athafna. Þar undir eru ekki síður hrossabændur sem og aðrar greinar. Það er hart sótt að landbúnaði almennt og þar undir er t.d. sjálfbærnireglugerð sem hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda.

Hvers vegna ættu hrossabændur að vera aðilar að Búgreinadeild/Bí?

Í reglugerð um íslenska hestinn er tekið til ábyrgð BÍ um utanumhald um ættbók Íslenska hestinn. Það verkefni er vistað hjá RML sem er í fullri eigu Bændasamtakanna. Ef fyrirkomulagið eigi að vera með öðrum hætti er mikilvægt að greinin í heild sinni taki samtalið ef það á að vera með öðrum hætti. Búgreinadeildin hefur fengið fullan stuðning frá BÍ vegna breytinga á stofnverndarsjóði Íslenska hestsins og eins barátta okkar til að hlutur af gjaldi vegna útflutningi á hrossum renni til greinarinnar. Það lýtur allt út fyrir að niðurstaðan verði að þróunarfé hrossaræktarinnar verði að veruleika á þessu ári og höfum við stutt við það fyrirkomulag gagnvart ráðuneytinu.

Hversvegna ætti fólk að kjósa þig sem formann?

Ég hef starfað sem formaður síðastliðin 4 ár og unnið að því að sameina bændur undir einum samtökum. Það er mikilvægt að við höldum áfram á þeirri vegferð öllum bændum til hagsbóta. Ég er reiðubúinn að vinna að þeim málum áfram fái ég til þess umboð.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link