UPPBOÐSÆTI: GÆÐINGASKEIÐ OG 150M SKEIÐ
Stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum hefur opnað fyrir skráningu í uppboðssæti í Gæðingaskeiði og 150m skeiði sem fer fram laugardaginn 8. apríl næstkomandi.
Skráningarfrestur er til 6. apríl kl. 12:00. Þeir sem hafa hug á að næla sér í sæti og keppa meðal þeirra bestu senda tilboð á [email protected].
Lög deildarinnar segja til um að einn einstakur knapi getur keypt sér keppnisrétt, ef fleiri en einn vilja taka þátt mun hæsta boð gilda.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Hestamannafélagið Sörli leitar að móta- og viðburðafulltrúa