Upprifjunarnámskeið HÍDÍ
Síðasti skráningardagur á Upprifjunarnámskeið HÍDÍ sem fer fram í reiðhöllinni Víðidal 12. Febrúar kl. 10-17 er í dag fimmtudaginn 9. febrúar að er fram kemur í tilkynningu frá stjórn og fræðslunefnd HÍDÍ:
Vinsamlegast sendið skráningu á netfangið [email protected]
Námskeiðagjald kr. 15.000 / greiðist á staðnum í peningum, mæting á námskeið telst gild þegar greiðsla hefur borist.
Innifalið í gjaldi: þátttökugjald námskeiðs, félagsgjald HÍDÍ, hádegismatur og kaffi.
Minnum alþjóðadómara á að láta vita ef þeir hafa skráð sig á Alþjóða dómararáðstefnuna. Ef alþjóða dómari vill mæta á upprifjunina (er jafnframt skráður á ráðstefnuna í apríl) á sunnudaginn þá höfum við ákveðið gjaldið fyrir þá kr. 5.000 (félagsgjald HÍDÍ og matur)
Viljum minna dómara á að koma klædd eftir veðri (dæmum úti) og með allar handbækur (Lög og reglur LH, Leiðarinn 2011) og penna/blýant og auðvitað góða skapið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH