Uppselt á stóðhestaveisluna

  • 9. apríl 2022
  • Fréttir
Sýnt verður frá sýningunni í beinni

Uppselt er á Stóðhestaveisluna sem er í kvöld, laugardag, í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli.

Ekki þarf þó að örvænta því sýnt verður beint frá veislunni á Alendis.is

Stóðhestaveislan hefst stundvíslega kl 20:00 og lofar sýningarstjóri, Teitur Árnason, gæðingaveislu. “Þeir sem hafa tryggt sér miða munu ekki sjá eftir því. Þetta verður þvílíka gæðingaveislan. Frábærir hestar, bæði sem hafa ekki sést áður og svo aðrir sem eru þekktari. Ég held þetta verði frábær helgi hérna á Ingólfshvoli og hvet alla til að mæta,” sagði Teitur í viðtali við Eiðfaxa hér fyrr í vikunni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link