Uppskeruhátíð Geysis haldinn með pompi og prakt
Uppskeru- og árshátíð Geysis fór fram í Hvolnum á Hvolsvelli síðastliðinn laugardag. Þar voru ræktendur og knapar verðlaunaðir en Geysisfélagar nutu mikillar velgengni í ár og þá sérstaklega á Landsmóti.
Eftirfarandi myndband var unnið af Eiðfaxa fyrir uppskeruhátíðina upp úr myndefni Rúv frá sunnudeginum á Landsmóti. Í því sjást úrslita knapar og hestar úr Geysi í gæðingakeppni.
Verðlaunahafar í Geysi og allir tilnefndir
Íþróttaknapi Geysis er Ásmundur Ernir Snorrason
Íþróttaknapi Geysis er sá knapi sem er félagsmaður í Geysir og keppir fyrir Geysir á keppnistímabilinu. Knapi sem hefur staðið framúr í íþróttakeppni á árinu. Sigrað á stórmótum og verið með breiðan árangur, bæði í mörgum greinum eða með marga hesta. Einnig er hægt að verða Íþróttaknapi Geysis fyrir einstakt afrek.
Aðrir tilnefndir:
- Gústaf Ásgeir Hinriksson
- Hans Þór Hilmarsson
- Ólafur Andri Guðmundsson
- Þorgeir Ólafsson
Gæðingaknapi Geysis er Hanna Rún Ingibergsdóttir
Gæðingaknapi Geysis er sá knapi sem er félagsmaður í Geysir og keppir fyrir Geysir á keppnistímabilinu. Þar sem hesturinn er að keppa í gæðingakeppni er einnig horft til árangurs Geysis knapa sem keppir á hestum fyrir önnur hestamannafélög. Horft er á að hesturinn gerir ekkert án knapans. Knapi sem hefur staðið fram úr í gæðingakeppni á árinu. Sigrað á stórmótum og verið með breiðan árangur, bæði í mörgum greinum eða með marga hesta. Einnig er hægt að verða Gæðingaknapi Geysis fyrir einstakt afrek.
- Ásmundur Ernir Snorrason
- Bergrún Ingólfsdóttir
- Elvar Þormarsson
- Sigurður Sigurðarson
Ungmenni Geysis er Jón Ársæll Bergmann
Ungmenni Geysis er sá knapi sem er félagsmaður í Geysir og keppir fyrir Geysir á keppnistímabilinu. Knapi sem hefur staðið framúr í íþróttakeppni og/eða gæðingakeppni á árinu. Sigrað á stórmótum og verið með breiðan árangur, bæði í mörgum greinum eða með marga hesta. Einnig er hægt að verða Ungmenni Geysis fyrir einstakt afrek.
Aðrir tilnefndir:
- Kristján Árni Birgisson
- Lilja Dögg Ágústsdóttir
- Sigurður Steingrímsson
- Viktoría Vaka Guðmundsdóttir
Áhugamaður Geysis er Orri Arnarsson
Heimahagabikarinn er afhentur þeim áhugamannaknapa Geysis, sem er félagsmaður í Geysir og keppir fyrir Geysir á keppnistímabilinu. Knapi sem hefur staðið framúr í íþróttakeppni eða gæðingakeppni á árinu. Sigrað á stórmótum og verið með breiðan árangur, bæði í mörgum greinum eða með marga hesta. Einnig er hægt að hljóta Heimahagabikarinn fyrir einstakt afrek. Þeir sem keppa í meistarflokki í íþróttakeppni hafa ekki möguleika á þessum bikar.
Aðrir tilnefndir:
- Eyrún Jónasdóttir
- Hannes Brynjar Sigurgeirsson
- Sigurlín F. Arnarsdóttir
- Theodóra Jóna Guðnadóttir
Skeiðknapi ársins er Þorgeir Ólafsson
Skeiðknapi Geysis er sá knapi sem er félagsmaður í Geysir og keppir fyrir Geysir á keppnistímabilinu. Knapi sem hefur staðið framúr í skeiðgreinum á árinu. Sigrað á stórmótum og verið með breiðan árangur, bæði í mörgum greinum eða með marga hesta. Einnig er hægt að hljóta Skeiðskálina fyrir einstakt afrek.
- Gústaf Ásgeir Hinriksson
- Hans Þór Hilmarsson
- Jón Ársæll Bergmann
- Sigurður Sigurðsson
Mjölnisbikarinn
Hlýtur sá Geysisfélagi sem hlotið hefur hæstu einkunn í forkeppni T1 töltkeppni á árinu. Skiptir ekki máli hvort eigandi hestsins sé í Geysir eða ekki.
- Gústaf Ásgeir Hinriksson og Assa frá Miðhúsum 8.43 (Íslandsmót ungmenna og fullorðinna (WR))
Knapi ársins er Ásmundur Ernir Snorrason
Hlýtur sá félagsmaður Geysis sem keppir fyrir Geysir á keppnistímabilinu. Knapi sem hefur staðið framúr á árinu. Sigrað á stórmótum og verið með breiðan árangur, bæði í mörgum greinum eða með marga hesta. Einnig er hægt að verða Knapi Geysis fyrir einstakt afrek.
Sjálfboðaliði ársins er Ólafur Þórisson
Hryssubikar Geysis
Hlýtur sá Geysisfélagi sem er ræktandi og eigandi af hæðst dæmdu hryssu í kynbótadómi á árinu. Skiptir ekki máli hvort sá Geysisfélagi sé að keppa fyrir Geysis hönd á árinu eða sé aukafélagi í Geysir. Hryssa verður að vera í eigu ræktanda þegar hryssan fær sinn hæsta dóm.
- Nóta frá Sumarliðabæ 2
e: 8.67
Stóðhestabikar Geysis
Hlýtur sá Geysisfélagi sem er ræktandi og eigandi af hæðst dæmda stóðhest í kynbótadómi á árinu. Skiptir ekki máli hvort sá Geysisfélagi sé að keppa fyrir Geysis hönd á árinu eða sé aukafélagi í Geysir. Stóðhestur verður að vera í eigu ræktanda þegar stóðhesturinn fær sinn hæðsta dóm.
- Agnar frá Margrètarhofi
e: 8.59
Allir aldursflokkar kynbótahrossa bæði stóðhestar og hryssur
Ræktendur af hæst dæmdu stóðhestum og hryssum í öllum aldursflokkum fá verðlaunaplatta. Skiptir ekki máli hvort sá Geysisfélagi sé að keppa fyrir Geysis hönd á árinu eða sé aukafélagi í Geysir.
- 7 vetra og eldri
- Hryssa – Hildur frá Fákshólum, Jakob Svavar Sigurðsson
- Stóðhestar – Frosti frá Hjarðartúni, Óskar Eyjólfsson
- 6 vetra
- Hryssa -Villimey frá Feti, Fet ehf.
- Stóðhestur – Agnar frá Margrétarhofi, Margrétarhof hf.
- 5 vetra
- Hryssa – Nóta frá Sumarliðabæ 2, Birgir Már Ragnarsson
- Stóðhestur – Baldvin frá Margrétarhofi, Margrétarhof hf.
- 4 vetra
- Hryssa – Kría frá Árbæ, Vigdís Þórarinsdóttir
- Hryssa – Dama frá Hjarðartúni, Óskar Eyjólfsson
- Stóðhestur – Svartur frá Vöðlum, Ástríður Lilja Guðjónsdóttir og Margeir Þorgeirsson
Keppnishestabú Geysis er Árbæjarhjáleiga II
Það ræktunarbú Geysis sem ræktar framúrskarandi keppnishross hlýtur bikar að nafni Keppnishestabú Geysis. Hér er farið yfir árangur allra þeirra hrossa sem vitað er um að séu að gera það gott á keppnisvellinum. Skiptir ekki máli hvort sá Geysisfélagi sé að keppa fyrir Geysis hönd á árinu eða sé aukafélagi í Geysir. Litið er til tilnefningar LH.
Aðrir tilnefndir:
- FET
- Hjarðartún
- Hvolsvöllur
- Kirkjubær
- Strandarhöfuð
Ræktunarbúbú Geysis er Sumarliðabær 2
Það ræktunarbú Geysis sem ræktar framúrskarandi kynbótahross hlýtur bikar að nafni Ræktunarbú Geysis. Hér er farið yfir árangur allra þeirra hrossa sem vitað er um að séu að gera það gott á kynbótabrautinni. Skiptir ekki máli hvort sá Geysisfélagi sé að keppa fyrir Geysis hönd á árinu eða sé aukafélagi í Geysir. Farið er eftir sömu reglum og á landsvísu.
Aðrir tilnefndir:
- Fet
- Hjarðartún