Hestamannafélagið Jökull Vel heppnað mót á Flúðum

  • 29. júlí 2026
  • Fréttir
Niðurstöður frá Gæðingamótinu á Flúðum

Hið árlega gæðingamót Hestamannafélagsins Jökuls fór fram á Flúðum um síðastliðna helgi, þátttaka var með ágætum í flestum keppnisgreinum og margir frábærir gæðingar skráðir til leiks. Auk hinna hefðbundnu greina í gæðingakeppni var einnig keppt í tölti og 100 metra skeiði.

A-flokkur gæðinga

Í A-flokki gæðinga var Nagli frá Flagbjarnarholti, sýndur af Sigurbirni Bárðarsyni, efstur að lokinni forkeppni með 8,69 í einkunn. Hann hélt forystu sinni í A-úrslitum og varð þar efstur með einkunnina 8,89. Annar varð Salómon frá Efra-Núpi með 8,74 knapi á honum var Fredrica Fagerlund og í þriðja sætinu varð Sóli frá Þúfu í Landeyjum með 8,66 en knapi hans var Eygló Arna Guðnadóttir.

Í A-flokki áhugamanna (Gæðingaflokkur 2) stóð efstur Hrappur frá Breiðholti í Flóa með 8,57 knapi á honum Katrín Ósk Kristjánsdóttir. Annar varð Vakar frá Auðsholtshjáleigu með 8,54 og Vilborg Smáradóttir og í þriðja sætinu Tónn frá Breiðholti í Flóa með 8,44 sýndur af Kristínu Ingólfsdóttur.

Í A-flokki ungmenna var Þórdís Arnþórsdóttir á Hrönn frá Þjóðólfshaga 1 efst eftir forkeppni með 8,46. Í úrslitum var það Þórhildur Lotta Kjartansdóttir á Kjalari frá Völlum sem krækti í sigurinn með einkunnina 8,47. Þórdís á Hrönn frá Þjóðólfshaga 1 varð önnur með 8,40 og í þriðja sæti varð Anton Óskar Ólafsson á Sinfóníu frá Heimahaga með 8,21.

B-flokkur gæðinga

Í B-flokki gæðinga var Vísir frá Kagaðarhóli, sýndur af Páli Braga Hólmarssyni, efstur að lokinni forkeppni með 8,77 í einkunn. Hann hélt forystu sinni í A-úrslitum og varð þar efstur með glæsilega einkunn, 9,04. Annar varð Sólon frá Ljósalandi í Kjós með 8,75 en knapi á honum var Hlynur Guðmundsson, og í þriðja sætinu varð Hervir frá Torfunesi með 8,69 sýndur af Sigurbirni Bárðarsyni.

Í B-flokki áhugamanna (Gæðingaflokkur 2) var Ögri frá Unnarholti, sýndur af Einari Ásgeirssyni, efstur að lokinni forkeppni með 8,41. Í A-úrslitum stóð hins vegar Gutti frá Brautarholti efstur með 8,59 en knapi á honum var Inga Kristín Sigurgeirsdóttir. Ögri frá Unnarholti og Einar urðu að lokum í öðru sæti með 8,57 og í þriðja sætinu varð Ásvar frá Hamrahóli með 8,40, sýndur af Kristínu Ingólfsdóttur.

Í B-flokki ungmenna stóð Þórdís Arnþórsdóttir á Flóka frá Hlíðarbergi efst að lokinni forkeppni með 8,48. Í A-úrslitum bar Herdís Björg Jóhannsdóttir á Þór frá Efri-Brú sigur úr býtum með 8,65 í einkunn. Annar varð Viktor Óli Helgason á Hauki frá Efri-Brú með 8,61, og þriðja varð Þórdís á Flóka frá Hlíðarbergi með 8,60.

Barnaflokkur gæðinga

Í barnaflokki gæðinga var Birkir Snær Sigurðsson á Laufa frá Syðri-Völlum efstur eftir forkeppni með 8,43. Í A-úrslitum fór hins vegar Sigursteinn Ingi Jóhannsson á Hrynjanda frá Geysisholti með sigur af hólmi með einkunnina 8,52. Önnur varð Unnur Einarsdóttir á Klaka frá Brekku með 8,49, og þriðji varð Birkir Snær á Laufa frá Syðri-Völlum með 8,46.

Unglingaflokkur gæðinga

Í unglingaflokki gæðinga leiddi Álfheiður Þóra Ágústsdóttir á Auði frá Vestra-Fíflholti eftir forkeppni með 8,44 í einkunn. Í A-úrslitum var það hins vegar Íris Thelma Halldórsdóttir á Skugga frá Austurey 2 sem sigraði með 8,54. Önnur varð Sigríður Elva Elvarsdóttir á Muna frá Syðra-Skörðugili með 8,53 og þriðja varð Emma Rún Sigurðardóttir á Fána frá Sperðli með 8,28.

Tölt T3

Töltkeppnin var jafnframt spennandi. Í tölti T3, 1. flokki fullorðinna, var Matthías Leó Matthíasson á Lyftingu frá Reykjum efstur bæði í forkeppni og A-úrslitum og hlaut 7,28 í úrslitaeinkunn. Önnur varð Ragnhildur Haraldsdóttir á Hertoga frá Njálsstöðum með 7,11 og þriðji varð Einar Ásgeirsson á Ögra frá Unnarholti með 6,89. Í unglingaflokki í sömu grein sigraði Íris Thelma Halldórsdóttir á Skugga frá Austurey 2 og hlaut 5,78 í einkunn í A-úrslitum.

Tölt T7

Í tölti T7, 2. flokki fullorðinna, stóð Halldóra Sif Guðlaugsdóttir á Lokkadísi frá Mosfellsbæ efst eftir forkeppni, en í A-úrslitum sigraði Erla Katrín Jónsdóttir á Hörpu frá Horni með 6,92 í einkunn. Halldóra Sif á Lokkadísi varð önnur með 6,67. Jafnar í 3.-4. sæti urðu Arnhildur Halldórsdóttir á Dimmu frá Kambi og Birna Ólafsdóttir á Andvara frá Skipaskaga, báðar með 6,25.
Í barnaflokki í tölti T7 var það Patrekur Magnús Halldórsson á Vík frá Eylandi sem vann A-úrslitin með 6,33 í einkunn. Önnur varð Unnur Einarsdóttir á Klaka frá Brekku með 6,08, en hún hafði leitt eftir forkeppnina. Þriðja varð Lísa Sigurðardóttir Thies á Kátínu frá Búðarhóli með 5,67.

100 metra flugskeið (P2)

Á laugardeginum fór fram keppni í 100 metra flugskeiði (P2) þar sem sprettirnir voru hraðir. Kvistur frá Kommu og Konráð Valur Sveinsson flugu fyrstir í mark á frábærum tíma, 7,51 sekúndu. Önnur varð Hildur frá Þóroddsstöðum á 7,81 sekúndu en knapi hennar var Bjarni Bjarnason, og í þriðja sæti varð Spakur frá Húsanesi á 7,93 sekúndum sýndur af Páli Braga Hólmarssyni.

Heildarniðurstóður mótsins eru aðgengilegar á snjallforriti HorseDay

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link