Uppskeruhátíðin um helgina
Það styttist í hátíð hátíðanna í hestamennskunni því Uppskeruhátíð hestamanna fer fram á Broadway á laugardagskvöldið kemur, þann 10. nóvember.
Miðasalan er í fullum gangi á Broadway (533 1100) og spennan fyrir valinu á knöpum ársins að ná hámarki. Okkar glæsilegu íþróttamenn hljóta eftirtalin verðlaun á hátíðinni:
▪ Efnilegasti knapi ársins
▪ Skeiðknapi ársins
▪ Íþróttaknapi ársins
▪ Gæðingaknapi ársins
▪ Kynbótaknapi ársins
▪ Knapi ársins
▪ Heiðursverðlaun LH
▪ Ræktun keppnishesta
Gísli Einarsson fréttamaður og ritstjóri Landans mun fara með veislustjórnina, Ingó veðurguð mætir með gítarinn og hljómsveitin Von ásamt Magna Ásgeirssyni mun halda uppi fjörinu á ballinu.
Matseðillinn
▪ Forréttur: Laxatartar með pestó & brauði
▪ Aðalréttur: Ofnbakaður lambavöðvi með rótargrænmeti, rösti kartöflum & villisveppasósu
▪ Eftirréttur: Frönsk súkkulaðikaka með karamellukremi & rjóma
Verð á hátíðina, matur og ball er kr. 8.200 en stakur miði á ballið kostar kr. 2.500.
Nú er tækifærið til að hittast, gleðjast saman og fagna góðum árangri ársins 2012!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH