Uppsveitadeild Íshesta 2013
„Lokamót Uppsveitadeildar Íshesta var haldið á föstudagskvöld þegar keppt var í tölti og flugskeiði. Mjög góð stemning var meðal keppenda og áhorfenda sem komu og fylltu reiðhöllina til að hvetja sín lið. Fyrir kvöldið leiddi lið Baldvins og Þorvalds liðakeppnina á föstudagskvöldið og þegar leið á kvöldið kom í ljós að það var ekki í boði að gefa það eftir.
Eftir forkeppni í tölti var hin sigursæla Helga Una Björnsdóttir efst með 7.50 á Grýtu frá Garðabæ sem þekkir hringvöllinn vel. Næst á eftir henni var Ólafur Ásgeirsson með 7.20 á glæsilegri hryssu Vordísi frá Jaðri. Bæði kepptu þau fyrir lið Baldvins og Þorvalds. Í þriðja sæti forkeppni var Þórarinn Ragnarsson á Þyt frá Efsta Dal II með 7.00 sem keppti fyrir lið Frumherja. Sólon Morthens sem keppti fyrir lið North Rock á Kát frá Efsta Dal II var í fjórða sæti forkeppni með 6.43 og fóru þessir knapar rakleiðis í A-úrslit.
Tveir knapar voru jafnir í fyrsta sæti í B-úrslitum og færðust upp í A-úrslit. Það voru Sigurbjörg Bára Björnsdóttir á Silfurdís frá Vorsabæ II sem keppti fyrir Stuðmenn og Líney Kristinsdóttir á Rúbín frá Fellskoti sem keppti fyrir JÁVERK.
Í úrslitum sáust glæsilegt tilþrif og allar einkunnir hækkuðu en það breytti ekki niðurröðun nema að hin stórefnilega Sigurbjörg Bára frá Vorsabæ skaust upp í fjórða sæti. Hún lét þetta ekki næga heldur stóð efst í ungmennaflokki á Vetrarmóti Smára daginn eftir.
Að lokinni töltkeppni var hleypt á flugskeið í gegnum höllina og var keppt við klukkuna. Hleypt var tveimur sprettum og tíu efstu fóru áfram í úrslit þar sem teknir voru þrír sprettir og mældur tími á á um það bil 30 metra kafla. Glæsilegir sprettir sáust og falleg tilþrif og var haft á orði að sumir hefðu endað inn á afrétt þvílíkur var hraðinn.
Þórarinn Ragnarsson sem keppti fyrir Frumherja á Funa frá Hofi sigraði á 2.99 sekúndum en Sólon Morthens varð í öðru sæti á 3.03 sekúndum á Glaumdísi frá Dalsholti og í þriðja sæti varð ungur og efnilegur knapi Jón Óskar Jóhannesson á Ásadís frá Áskoti á 3.05.
Að lokinni keppni var verðlaunaafhending fyrir heildarstigafjölda. Lið Baldvins og Þorvalds sigraði Uppsveitadeildar Íshesta með 64 stig samtals en Kílhraun varð í öðru sæti með 41 stig. Knapar Baldvins og Þorvalds voru einnig í efstu tveimur sætunum knapakeppninnar þar sem hin sigursæla Helga Una Björnsdóttir með 34 stig sigraði liðsfélaga sinn Ólaf Ásgeirsson sem fékk 30 stig.
Uppsveitadeild Íshesta hefur svo sannarlega aukið metnað og fagmennsku í hestamennsku í uppsveitunum og búinn að festa sig í sessi. Mótshaldið hefur gengið mjög vel og margir lagt hönd á plóg og er þeim öllum þökkuð góð verk. Margt hefur lærst í vetur en stefnan er að auka kynningu keppningar næsta vetur og bæta hestakost enn frekar.
|
|
||||||
|
|
||||||
|
|
|
|||||
|
|
|
|||||
|
|
||||||
|
|
||||||
|
Úrslit Uppsveitadeildar Íshesta 2013 |
||||||
|
Forkeppni |
||||||
|
Sæti |
Knapi |
Hross |
Litur |
Aðildafélag knapa |
Einkunn |
|
|
1 |
Helga Una Björnsdóttir |
Grýta frá Garðabæ |
móálótt |
Smári |
7,50 |
|
|
2 |
Ólafur Ásgeirsson |
Vordís frá Jaðri |
Jörp |
Smári |
7,20 |
|
|
3 |
Þórarinn Ragnarsson |
Þytur frá Efsta-Dal II |
Brúnn/milli- einlitt |
Smári |
7,00 |
|
|
4 |
Sólon Morthens |
Kátur frá Efsta-Dal II |
Brúnstjörnóttur |
Logi |
6,43 |
|
|
5 |
Sigurbjörg Bára Björnsdóttir |
Silfurdís frá Vorsabæ II |
Brúnn/mó- einlitt |
Smári |
6,23 |
|
|
41432 |
Aðalheiður Einarsdóttir |
Rökkva frá Reykjum Laugarbakka |
Brúnn/milli- einlitt |
Smári |
6,17 |
|
|
41432 |
Bjarni Bjarnason |
Hnokki frá Þóroddsstöðum |
Brúnn/milli- einlitt |
Trausti |
6,17 |
|
|
8 |
Líney Kristinsdóttir |
Rúbín frá Fellskoti |
Brúnn/milli- einlitt |
Logi |
6,13 |
|
|
9 |
Guðmann Unnsteinsson |
Þokki frá Þjóðóllfshaga |
Brúnn/milli- einlitt |
Smári |
6,10 |
|
|
10 |
Halldór Þorbjörnsson |
Ópera frá Hurðarbaki |
Grár/brúnn einlitt |
Trausti |
6,07 |
|
|
11 |
Þorsteinn Gunnar Þorsteinss. |
Helga frá Stóra Hofi |
Jarpur/milli- einlitt |
Smári |
6,03 |
|
|
12 |
Bjarni Birgisson |
Stormur frá Reykholti |
Jarpur/rauð- einlitt |
Smári |
6,00 |
|
|
13-14 |
Jón Óskar Jóhannesson |
Körtur frá Torfastöðum |
Brúnn/milli- einlitt |
Logi |
5,90 |
|
|
13-14 |
Kristbjörg Guðmundsdóttir |
Blær frá Efsta-Dal I |
Rauður/milli- einlitt glófext |
Trausti |
5,90 |
|
|
15 |
Gunnlaugur Bjarnason |
Brúnblesi frá Sjávarborg |
Brúnn/milli- blesótt |
Smári |
5,87 |
|
|
16 |
Hólmfríður Kristjánsdóttir |
Blika frá Ólafsvöllum |
Brúnn/milli- einlitt |
Smári |
5,60 |
|
|
17 |
Aðalsteinn Aðalsteinsson |
Hekla frá Ásbrekku |
Rauður/milli- stjörnótt |
Smári |
5,47 |
|
|
18 |
María Birna Þórarinsdóttir |
Rún frá Fellskoti |
Rauður/milli- einlitt |
Logi |
5,13 |
|
|
19 |
Þórey Helgadóttir |
Bríet frá Friðheimum |
Brúnn/milli- einlitt |
Logi |
5,00 |
|
|
20 |
Björgvin Ólafsson |
Óður frá Kjarnholtum I |
Rauður/milli- einlitt |
Smári |
4,60 |
|
|
B úrslit |
||||||
|
Sæti |
Knapi |
Hross |
Litur |
Aðildafélag knapa |
Einkunn |
|
|
41276 |
Líney Kristinsdóttir |
Rúbín frá Fellskoti |
Brúnn/milli- einlitt |
Logi |
6,44 |
|
|
41276 |
Sigurbjörg Bára Björnsdóttir |
Silfurdís frá Vorsabæ II |
Brúnn/mó- einlitt |
Smári |
6,44 |
|
|
3 |
Bjarni Bjarnason |
Hnokki frá Þóroddsstöðum |
Brúnn/milli- einlitt |
Trausti |
6,39 |
|
|
4 |
Guðmann Unnsteinsson |
Þokki frá Þjóðóllfshaga |
Brúnn/milli- einlitt |
Smári |
6,11 |
|
|
5 |
Aðalheiður Einarsdóttir |
Rökkva frá Reykjum Laugarbakka |
Brúnn/milli- einlitt |
Smári |
5,78 |
|
|
A úrslit |
||||||
|
Sæti |
Knapi |
Hross |
Litur |
Aðildafélag knapa |
Einkunn |
|
|
1 |
Helga Una Björnsdóttir |
Grýta frá Garðabæ |
móálótt |
Smári |
7,78 |
|
|
2 |
Ólafur Ásgeirsson |
Vordís frá Jaðri |
Jörp |
Smári |
7,67 |
|
|
3 |
Þórarinn Ragnarsson |
Þytur frá Efsta-Dal II |
Brúnn/milli- einlitt |
Smári |
7,44 |
|
|
4 |
Sigurbjörg Bára Björnsdóttir |
Silfurdís frá Vorsabæ II |
Brúnn/mó- einlitt |
Smári |
6,72 |
|
|
41400 |
Líney Kristinsdóttir |
Rúbín frá Fellskoti |
Brúnn/milli- einlitt |
Logi |
6,67 |
|
|
41400 |
Sólon Morthens |
Kátur frá Efsta-Dal II |
Brúnstjörnóttur |
Logi |
6,67 |
|
|
SKEIð 100M (FLUGSKEIð) |
||||||
|
Sæti |
Knapi |
Hross |
Litur |
Aðildafélag knapa |
Tími |
|
|
1 |
Þórarinn Ragnarsson |
Funi frá Hofi |
Rauður/milli- einlitt |
Smári |
2,99 |
|
|
2 |
Sólon Morthens |
Glaumdís frá Dalsholti |
Brún |
Logi |
3,03 |
|
|
3 |
Jón Óskar Jóhannesson |
Ásadís frá Áskoti |
Rauður/bleik- skjótt |
Logi |
3,05 |
|
|
4 |
Hermann Þór Karlsson |
Gítar frá Húsatóftum |
Leirljós/Hvítur/milli- ei… |
Smári |
3,14 |
|
|
5 |
Guðmann Unnsteinsson |
Hreimur frá Syðri-Gróf 1 |
Jarpur/ljós einlitt |
Smári |
3,24 |
|
|
6 |
Helga Una Björnsdóttir |
Rammur frá Höfðabakka |
Brúnn/milli- einlitt |
Smári |
3,27 |
|
|
7 |
Ólafur Ásgeirsson |
Rauðkollur frá Eyvindarmúla |
Rauður/milli- einlitt |
Smári |
3,31 |
|
|
8 |
Þorsteinn Gunnar Þorsteinss. |
Þöll frá Haga |
Grár/bleikur einlitt |
Smári |
3,32 |
|
|
9 |
Halldór Þorbjörnsson |
Hula frá Miðhjáleigu |
Grár/rauður stjörnótt |
Trausti |
0 |
|
|
10 |
Þorkell Bjarnason |
Dís frá Þóroddsstöðum |
Rauður/milli- einlitt |
Trausti |
0 |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
úrslit liðakeppni |
|
|
|
|
|
|
|
|
4-G |
5-G |
TÖLT |
SKEIÐ |
SAMTALS |
|
|
BALDVIN OG ÞORVALDUR |
19 |
17 |
19 |
9 |
64 |
|
|
KÍLHRAUN |
12 |
17 |
3 |
9 |
41 |
|
|
STUÐMENN |
8 |
4 |
9 |
7 |
28 |
|
|
FRUMHERJAR |
7 |
3 |
8 |
10 |
28 |
|
|
JÁVERK |
4 |
6 |
6 |
0 |
16 |
|
|
NORTH ROCK |
5 |
3 |
5 |
17 |
30 |
|
|
VÍKINGARNIR |
0 |
5 |
5 |
3 |
13 |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
KNAPI-LIÐ |
4-G |
5-G |
TÖLT |
SKEIÐ |
SAMTALS |
|
|
Helga Una Björnsdóttir BALDVIN OG ÞORVALDUR |
10 |
9 |
10 |
5 |
34 |
|
|
Guðmann Unnsteinsson KÍLHRAUN |
8 |
10 |
3 |
6 |
27 |
|
|
Ólafur Ásgeirsson BALDVIN OG ÞORVALDUR |
9 |
8 |
9 |
4 |
30 |
|
|
Hólmfríður Kristjánsdóttir KÍLHRAUN |
4 |
7 |
|
|
11 |
|
|
Þórarinn Ragnarsson FRUMHERJAR |
7 |
3 |
8 |
10 |
28 |
|
|
María Þórarinsdóttir JÁVERK |
1 |
6 |
|
|
7 |
|
|
Sigurbjörg Bára Björnsdóttir STUÐMENN |
6 |
0 |
7 |
|
13 |
|
|
Sólon Morthens NORTH ROCK |
5 |
0 |
5 |
9 |
19 |
|
|
Halldór Þorbjörnsson |
0 |
5 |
1 |
2 |
8 |
|
|
Hermann Karlsson STUÐMENN |
0 |
4 |
|
7 |
11 |
|
|
Líney Kristinsdóttir JÁVERK |
3 |
0 |
6 |
|
9 |
|
|
Aðalsteinn Aðalsteinsson STUÐMENN |
2 |
0 |
|
|
2 |
|
|
Jón Óskar Jóhannesson NORTH ROCK |
0 |
2 |
|
8 |
10 |
|
|
Knútur Ármann NORTH ROCK |
0 |
1 |
|
|
1 |
|
|
Kristján Ketilsson JÁVERK |
0 |
0 |
|
|
0 |
|
|
Guðjón Örn Sigurðsson BALVIN OG ÞORVALDUR |
0 |
0 |
|
|
0 |
|
|
Þorsteinn Gunnar Þorsteinsson KÍLHRAUN |
0 |
0 |
|
3 |
3 |
|
|
Bjarni Birgisson FRUMHERJAR |
0 |
0 |
|
|
0 |
|
|
Gunnlaugur Bjarnason FRUMHERJAR |
0 |
0 |
|
|
0 |
|
|
Bjarni Bjarnason VÍKINGARNIR |
0 |
0 |
4 |
|
4 |
|
|
Kristbjörg Guðmundsdóttir VÍKINGARNIR |
0 |
0 |
|
|
0 |
|
|
Sölvi Arnarsson VÍKINGARNIR |
0 |
0 |
|
|
0 |
|
|
Björgvin Ólafsson |
0 |
0 |
|
|
0 |
|
|
Gunnar Jónsson |
0 |
0 |
|
|
0 |
|
|
Guðmundur Birkir Þorkelsson |
0 |
0 |
|
|
0 |
|
|
Aðalheiður Einarsdóttir |
|
|
2 |
|
2 |
|
|
Þorkell Bjarnason víkingar |
|
|
|
1 |
1 |
|
|
|
|
|
|
|
|
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH