Uppsveitadeildin
Sigurlið Kílhrauns í uppsveitadeildinni
Undirbúningur er hafinn fyrir Uppsveitadeildina 2020. Deildin hefst í lok janúar. Deildin verður með sama sniði og árið 2019, að undanskildum Smalanum, sem verður ekki hluti af dagskrá vetrarins. Keppniskvöldin verða því þrjú nú í stað fjögurra árið 2019. Lágmarksaldur keppenda er 18 ára, eða þeir sem eru gjaldgengir sem keppendur í ungmenna og fullorðinsflokk skv. reglum LH.
Deildin verður aftur opin öllum hestamönnum en félagar í hestamannafélögunum Smára, Loga og Trausta ganga fyrir. Áfram verður hægt að vera með blönduð lið óháð félagsaðild keppanda. Hvert lið inniheldur fimm keppendur og í heildina verða sjö lið. Það eru því 35 sæti laus í deild vetrarins.
Skráningafrestur fyrir félagsmenn Loga, Trausta og Smára rennur út 21. nóvember næstkomandi og á skráningin að berast á netfangið: [email protected] . 22. nóvember opnar skráning fyrir þá aðila sem eru utan þessara þriggja félaga, að því gefnu að laus sæti séu enn í boði. Gildir þá reglan fyrstur kemur, fyrstur fær. Skráningu líkur 3. desember næstkomandi.
Þann 2. desember verður haldinn fundur fyrir þá keppendur sem hafa skráð sig í deildina og verður hann betur auglýstur þegar nær dregur. Skyldumæting verður á þann fund.
Keppnisdagar eru eftirfarandi:
- janúar – Fjórgangur
- febrúar – Fimmgangur
- mars – Tölt og Skeið