Uppsveitadeildin – úrslit úr Smalanum
Þetta er bráðskemmtilegt framtak sem nokkrir dugnaðarforkar hér í uppsveitum Árnsessýslu skipulögðu með það í huga að auka enn meir á fjölbreytta dagskrá Reiðhallarinnar jafnt og að skapa henni rekstrartekjur.
Uppsveitadeildin er fjögurra móta mótaröð sem saman stendur af bæði einstaklingskeppni og liðakeppni. Fyrsta mót keppninnar hvar haldið í Reiðhöllinni á Flúðum föstudagskvöldið 29.janúar. Til leiks voru mætt sex lið og var að þessu sinni keppt í Smala eða hraðafimi. Í þessari keppni reynir á samvinnu knapa og hests, þar sem hraði, öryggi, fimi, snerpa og kjarkur ráða úrslitum.
Það er skemmst frá því að segja að keppnin tókst vel í alla staði, knapar og hestar sýndu alla sína bestu takta sem varð til þess að áhorfendur sem fylltu höllina skemmtu sér stórvel. Þetta var hörku keppni og mikil spenna myndaðist því áður en úrslitin urðu ljós. Það má ekki gleyma liðstjórunum sem stóðu sig eins og hetjur og studdu sitt fólk með ráðum og dáðum. Það er mál manna að þarna hafi verið á ferðinni frábær skemmtun sem fólk ætti ekki að láta fram hjá sér fara, næsta mót verður haldið 26 febrúar næstkomandi og þá verður keppt í fjórgangi.
Sjá nánar hér fyrir neðan.
Úrslit í Smala:
Sæti
Knapi
Hestur
Lið
1
Aðalheiður Einarsdóttir
Moli frá Reykjum
ÚTLAGARNIR
2
Guðmann Unnsteinsson
Gifta frá Grafarkoti
ÍSL.GRÆNMETI/HÓTEL FLÚÐIR
3
Guðrún Magnúsdóttir
Snæfaxi frá Bræðratungu
JÁVERK
4
Hólmfríður Kristjándóttir
Dynjandi frá Grafarkoti
VAKI
5
Gústaf Lofsson
Gustur frá Lynghaga
VAKI
6
Knútur Ármann
Dögg frá Ketilsstöðum
SKÁLHOLTSSTAÐUR
7
Bjarni Birgisson
Smári frá Hlemmiskeiði
ÁRMENN
8
Ingvar Hjálmarsson
Djákni frá Langsstöðum
ÁRMENN
9
Líney Kristinsdóttir
Smjörvi frá Fellskoti
JÁVERK
10
Hermann Karlsson
Venus frá Ytri Bægisá II
ÁRMENN
Staðan í einstaklingskeppninni
Sæti Knapi Lið Stig
1 Aðalheiður Einarsdóttir ÚTLAGARNIR 10
2 Guðmann Unnsteinsson ÍSL.GRÆNMETI/HÓTEL FLÚÐIR 9
3 Guðrún Magnúsdóttir JÁVERK 8
4 Hólmfríður Kristjándóttir VAKI 7
5 Gústaf Lofsson VAKI 6
6 Knútur Ármann SKÁLHOLTSSTAÐUR 5
7 Bjarni Birgisson ÁRMENN 4
8 Ingvar Hjálmarsson ÁRMENN 3
9 Líney Kristinsdóttir JÁVERK 2
10 Hermann Karlsson ÁRMENN 1
Staðan í liðakeppninni
Sæti Lið Stig
1 VAKI 13
2-3 ÚTLAGARNIR 10
2-3 JÁVERK 10
4 ÍSLENSKT GRÆNMETI/HÓTEL FLÚÐIR 9
5 ÁRMENN 8
6 SKÁLHOLTSSTAÐUR 5
Lið: Jáverk Lið Íslenskt Grænmeti / Hótel Flúðir
Guðrún S. Magnúsdóttir Kristbjörg Kristinsdóttir
Líney Kristinsdóttir Cora Claas
Katrín Rut Sigurgeirsdóttir Guðmann Unnsteinsson
Liðsstjóri: Guðrún S. Magnúsdóttir Liðsstjóri: Hjálmar Gunnarsson
Lið: Útlagarnir Lið: Skálholtsstaður
Aðalheiður Einarsdóttir Knútur Ármann
Grímur Sigurðsson María Þórarinsdóttir
Þorsteinn Þorsteinsson Dóróthea Ármann
Liðsstjóri: Styrmir Þorsteinsson Liðsstjóri: Knútur Ármann
Lið: Vaki Lið: Ármenn
Gústaf Loftsson Ingvar Hjálmarsson
Viktoría Larsen Hermann Þór Karlsson
Hólmfríður Kristjánsdóttir Bjarni Birgisson
Liðsstjóri: Þorsteinn Loftsson Liðsstjóri: Björn Jónsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári