Úrslit frá Folaldasýningu Hrossaræktarfélags Flóahrepps
Folaldasýning Hrossaræktarfélags Flóahrepps var haldinn þann 13. mars 2022 í Sleipnishöllinni að Brávölllum á Selfossi. Mætt voru til leiks að þessu sinni 16 folöld – 11 hryssur og 5 hestar.
Nokkur fjöldi áhorfenda var mættur í höllina, er öllum þakkað fyrir komuna. Æskulýðsnefnd Sleipnis seldi kaffiveitingar og er þeim þakkað kærlega fyrir þann þátt.
Dómarar voru þeir Kristinn Guðnason í Árbæjarhjáleigu og Vignir Siggeirsson í Hemlu. Þeir gáfu folöldunum tvær einkunnir, fyrir annars vegar byggingu og hinsvegar fyrir hreyfingar. Síðan voru eftir forkeppni valin þau 5 folöld til úrslita sem dómurum fannst vera best að þeirra mati. Eftir að dómarnir höfðu ráðið ráðum sínum í úrslitunum og raðað þessum 5 folöldum í sæti, lýsti Kristinn hverju folaldi fyrir sig og sagði frá því hvað þeir Vignir hefðu séð í hverju folaldi og rökstuddi þannig sætaröðunina.
Það fór þá þannig að í efsta sæti í hryssuflokki endaði Steinvör frá Syðra-Velli undan Fenri frá Feti og Spöng frá Syðra-Velli, brún að lit. Eigandi og ræktandi hennar er Jón Gunnþór Þorsteinsson
Í öðru sæti var Melódía frá Austurási undan Draupni frá Stuðlum og Óperu frá Nýjabæ, rauðblesótt, glófext að lit. Ræktendur hennnar eru Ragnhildur og Haukur í Austurási en eigendur Austurás-hestar ehf og Ásta Björnsdóttir.
Í þriðjan sæti var Sveifla frá Austurási undan Viðar frá Skeiðvöllum og Gleði frá Selfossi, jarpskjótt að lit. Ræktendur hennar eru Ragnhildur og Haukur í Austurási en eigandi Austurás hestar ehf
Í fjórða sæti var síðan Brá frá Brúnastöðum 2 undan Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum og Freydís frá Brúnastöðum, móbrún að lit. Ræktandi og eigandi hennar er Ketill Ágústsson
Í fimmta sætinu frá síðan Líf frá Selfossi undan Skýr frá Skálakoti og Dropadís frá Miðey, brúntvístjörnótt að lit. Ræktendur og eigendur Jóhann Haraldsdóttir og Rúnar Andrésson
| Hryssur | |||
| Sæti | Folald | Bygging | Hreyfingar |
| 1 | Steinvör frá Syðra-Velli | 8,5 | 8,5 |
| 2 | Melódía frá Austurási | 8,5 | 8,5 |
| 3 | Sveifla frá Austurási | 8,5 | 8,4 |
| 4 | Brá frá Brúnastöðum 2 | 8 | 8,4 |
| 5 | Líf frá Selfossi | 8,5 | 7,5 |
| Sigð frá Austurási | 8,5 | 8 | |
| Lind frá Brúnastöðum 2 | 8 | 8 | |
| Ösp frá Oddgeirshólum | 8 | 7,5 | |
| Erla frá Brúnastöðum 2 | 8 | 7,5 | |
| Syrpa frá Bólstað | 7,5 | 7,5 | |
| Gná frá Oddgeirshólum | 7,5 | 7,5 |

Í hestaflokki var það Mökkur frá Miðholti sem sigraði. Hann er undan Viðari frá Skör og Mökk frá Selfossi, brúnn að lit. Ræktendur og eigendur Jón S. Gunnarsson og Elínborg Högnadóttir.
Í öðru sætinu var síðan Hermóður frá Syðra-Velli undan Óskasteini frá Íbishóli og Perlu frá Syðra-Velli, jarpur að lit. Ræktendur og eigendur Jón Gunnþór Þorsteinsson og Björn Ingi Ólafsson
Í þriðja sætinu frá Hjörtur frá Skegggjastöðum undan Storm frá Herríðarhóli og Björt frá Kjartansstöðum, rauðblesóttur að lit. Ræktandi er Ellen Bergan en eigandi Skeggi Gunnarsson
Í fjórða sætinu var Ægir frá Selfossi undan Brimni frá Efri-Fitjum og Flugu frá Selfossi, bleikálóttur að lit. Ræktendi hans er Rut Margrét Guðjónsdóttir sem er einnig eigandi ásamt Ingva Tryggvasyni.
Og í fimmta sætinu var Sprettur frá Sandbakka undan Fenri frá Feti og Hrafntinnu frá Sandbakka, brúnn að lit. Ræktandi og eigandi Guðrún Jónsdóttir.
| Hestar | |||
| Sæti | Folald | Bygging | Hreyfingar |
| 1 | Mökkur frá Miðholti | 8,5 | 8,4 |
| 2 | Hermóður frá Syðra-Velli | 8,5 | 8,5 |
| 3 | Hjörtur frá Skeggjastöðum | 8,2 | 8,3 |
| 4 | Ægir frá Selfossi | 8,3 | 8,2 |
| 5 | Sprettur frá Sandbakka | 8 | 7,8 |

Að lokum völdu síðan áhorfendur það folald sem þeim þótti best með kosningu. Það var Sveifla frá Austurási sem fékk flest atkvæðin í þeirri kosningu.






Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH