Úrslit frá Gæðingamóti Smára
Velheppnað gæðingamót Smára var haldið laugardaginn 20. ágúst á Flúðum að er fram kemur í frétt frá félaginu:
„Gæðingamót Smára var haldið laugardaginn 20. ágúst á Flúðum. Veðrið lék við keppendur sem og áhorfendur og var hestakostur prýðisgóður. Félagssvæði Smára er í mikilli uppbyggingu á nýju félagssvæði við Reiðhöllina og öll aðstaða að verða til fyrirmyndar.
Glæsilegir ungir knapar prýddu barnaflokkinn en hann sigraði að lokum Helgi Valdimar Sigurðsson á Kenningu frá Skollagróf og hlaut Helgi Valdimar einnig ásetuverðlaun í barnaflokki.
Ungmennaflokkinn sigraði Tanja Rún Jóhannsdóttir á Hrefnu frá Skeiðháholti, Tanja var eini keppandinn í ungmennaflokki og reið úrslit með knöpum í B flokki gæðinga og stóð sig þar með prýði.
Hörð barátta var bæði í A og B flokki gæðinga og munaði einungis 0,01 á efstu tveimur hestum í báðum flokkum.
B flokkinn sigraði Guðmann Unnsteinsson á Breytingu frá Haga, skammt á hæla þeirra komu svo Hólmfríður Kristjánsdóttir og Þokki frá Þjóðólfshaga og ekki svo langt á eftir Sigurbjörg Bára Björnsdóttir og Blossi frá Vorsabæ II.
A flokkurinn var ekki síður spennandi en leikar fóru þannig að lokum að Magnús Jakobsson og Sólmundur frá Hlemmiskeiði 3 sigruðu og kom því Hreppasvipan eftirsótta í þeirra hlut, hársbreidd á eftir Guðmann Unnsteinsson og Prins frá Langholtskoti og því næst Hermann Þór Karlsson og Gítar frá Húsatóftum.
Að lokinni gæðingakeppni fór fram opin töltkeppni þar sem margir glæsitöltarar komu fram. Margar góðar og jafnar sýningar sáust þó svo að hellidembu gerði á keppendur undir lokin.
Að loknum B úrslitum voru jöfn þau Katrín Rut Sigurgeirsdóttir og Bliki frá Leysingjastöðum og Guðmann Unnsteinsson og Prins frá Langholtskoti og úr varð að þau riðu bæði A úrslit.
Efstur eftir forkeppni var Magnús Jakobsson á glæsihryssunni Kosningu frá Hlemmiskeiði 3 og héldu þau því sæti allt til loka. Önnur var Líney Kristinsdóttir og Brá frá Fellskoti og þriðja var Hólmfríður Kristjánsdóttir á Þokka frá Þjóðólfshaga.
Sérstakar þakkir fá dómarar og allt starfsfólk og allir sem komu að framkvæmd mótssins.
Ljósmyndari var Sigurður Sigmundsson og fær hann kærar þakkir, fleiri myndir má sjá á www.smari.is.“
Meðfylgjandi eru helstu úrslit dagsins
BARNAFLOKKUR
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Helgi Valdimar Sigurðsson / Kenning frá Skollagróf 8,19
2 Þorvaldur Logi Einarsson / Fákur frá Miðfelli 2 7,78
3 Haraldur Brattaberg Ingólfsson / Fölvi frá Hrafnkelsstöðum 1 7,48
Helgi Valdimar hlaut ásetuverðlaun í barnaflokki
UNGMENNAFLOKKUR
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Tanja Rún Jóhannsdóttir / Hrefna frá Skeiðháholti 8,07
B FLOKKUR
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Breyting frá Haga I / Guðmann Unnsteinsson 8,46
2 Þokki frá Þjóðólfshaga 1 / Hólmfríður Kristjánsdóttir 8,45
3 Blossi frá Vorsabæ II / Sigurbjörg Bára Björnsdóttir 8,40
4 Loki frá Skeiðháholti 3 / Gunnar Jónsson 8,25
5 Sameignar-Grána frá Syðri-Gróf 1 / Hjálmar Gunnarsson 8,16
A FLOKKUR
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Sólmundur frá Hlemmiskeiði 3 / Magnús Jakobsson 8,49
2 Prins frá Langholtskoti / Guðmann Unnsteinsson 8,48
3 Gítar frá Húsatóftum / Hermann Þór Karlsson 8,40
4 Sýn frá Hlemmiskeiði 3 / Árni Svavarsson 8,28
5 Flipi frá Haukholtum / Ómar H Hjaltason 7,94
B ÚRSLIT TÖLT
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1-2 Katrín Sigurgeirsdóttir / Bliki frá Leysingjastöðum II 6,22
1-2 Guðmann Unnsteinsson / Prins frá Langholtskoti 6,22
3 Sigrún Arna Brynjarsdóttir / Húni frá Stuðlum 6,17
4 Gunnar Jónsson / Vífill frá Skeiðháholti 3 6,11
5 Smári Adolfsson / Hrafntinna frá Miðfelli 5 5,33
A ÚRSLIT TÖLT
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Magnús Jakobsson / Kosning frá Hlemmiskeiði 3 7,44
2 Líney Kristinsdóttir / Brá frá Fellskoti 7,22
3 Hólmfríður Kristjánsdóttir / Þokki frá Þjóðólfshaga 1 6,67
4 Guðmann Unnsteinsson / Prins frá Langholtskoti 6,61
5 Sigurbjörg Bára Björnsdóttir / Blossi frá Vorsabæ II 6,56
6 María Birna Þórarinsdóttir / Birta frá Fellskoti 6,33
7 Katrín Sigurgeirsdóttir / Bliki frá Leysingjastöðum II 4,33
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH