Úrslit Páskamót Geysis
Þrígangsmót Geysis var haldið í gær skírdag í Rangárhöllinni á Hellu.
Fram kemur í frétt frá Vetrarmótanefnd Geysis að góð stemmning hafi verið í höllinni, fjöldi af góðum hrossum tóku þátt sem gerði mótið sterkt og skemmtilegt. „Allir verðlaunahafar mótsins fóru sáttir heim og eiga eftir að gæða sér á páskaeggjunum, sem voru í verðlaun, nú yfir páskana. Vetrarmótanefnd þakkar styrktaraðilum fyrir stuðningin og óskar öllum gleðilegra páska og gleðilegs sumars.“
Úrslit mótsins voru eftirfarandi
Barnaflokkur:
1.Birta Ingadóttir á Frey frá Langholti, Andvari
2. Helga Þóra Steinsdóttir á Straum frá Lambhaga, Geysir
3. Eygló Kristín Egilsdóttir á Létting frá Berustöðum, Geysir
4. Hilmar Úlfarsson á Ófeig frá Skíðbakka III, Geysir
Unglingaflokkur
1. Jóna Guðbjörg Guðmundsdóttir á Smyril frá Hellu, Geysir
2. Andri Ingason á Björk frá Þjóðólfshaga, Andvari
Ungmennaflokkur
1. Ragnheiður Hallgrímsdóttir á Garra frá Hæl, Geysir
2. Hjörvar Ágústsson á Flögra frá Hjarðarholti, Geysir
3. Sophia Sörensen á Glóð frá Miðkoti, Geysir
Opinn flokkur 2
1.Nanna Daugjberg á Örvari frá Miðkoti, Geysir
2. Elísabet Sveinsdóttir á Hramm frá Galtastöðum, Andvari
3. Elka Guðmundsdóttir á Sæfaxa frá Eystra-fróðholti, Geysir
4. Högni Freyr á Stjarna frá Stóra Hofi, Geysir
5. Helga Björg Helgadóttir á Kviku frá Súluholti, Sleipnir
Opinn flokkur 1
1. Ólafur Þórisson á Háfeta frá Miðkoti, Geysir
2. Þórarinn Ragnarsson á Hljóm frá Horni, Andvari
3. Fredrik Sanderg á Svala frá Þorlákshöfn, Hörður
4. Henna Siren á Gorm frá Fljótshólum, Geysir
5. Daníel Smárason á Hugleikur frá Fossi, Fákur
6. Frida Dalen á Dug frá Dallandi, Hörður
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH