Úrslit úr fimmgangi í Uppsveitadeildinni
Föstudagskvöldið 26 mars fór fram keppni í fimmgangi í Uppsveitadeildinni í Reiðhöllinni á Flúðum. 18 knapar voru mættir til leiks og var keppnin jöfn og skemmtileg. Guðmann Unnsteinsson gerði sér lítið fyrir og sigraði B úrslitin á Prins frá Langholtskoti. Hann lét það ekki nægja heldur vann sig upp í fyrsta sætið eftir harða keppni í A úrslitum. Fast á hæla hans kom María Þórarinsdóttir á Eskimær frá Friðheimum og þriðji var Brynjar Jón Stefánsson á Pæju frá Bergstöðum sem stóðu efst eftir forkeppni.
Meðfylgjandi eru úrslit kvöldsins og staðan í einstaklings og liðakeppninni sem er mjg jöfn og spennandi. 20 stig eru eftir í pottinum og ljóst er að allt getur gerst á lokakvöldinu sem fram fer föstudagskvöldið 23 apríl næstkomandi en þá verður keppt í tölti og skeiði.
Fylgist með á www.smari.is
A úrslit
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Guðmann Unnsteinsson / Prins frá Langholtskoti 6,10
2 María Birna Þórarinsdóttir / Eskimær frá Friðheimum 5,95
3 Brynjar Jón Stefánsson / Pæja frá Bergstöðum 5,50
4 Bjarni Birgisson / Stormur frá Reykholti 4,10
B-úrslit
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Guðmann Unnsteinsson / Prins frá Langholtskoti 5,95
2 Hermann Þór Karlsson / Blær frá Efri-Brúnavöllum I 5,79
3 Aðalheiður Einarsdóttir / Hvati frá Saltvík 4,81
4 Gústaf Loftsson / Græðir frá Eystri-Grund 4,74
Staðan í einstaklingskeppninni eftir 3 greinar
knapi lið heildarstig
1 Aðalheiður Einarsdóttir ÚTLAGARNIR 25
2 Guðmann Unnsteinsson ÍSL. GRÆNMETI/HÓTEL FLÚÐIR 24
3 Bjarni Birgisson ÁRMENN 17
4 Hermann Þór Karlsson ÁRMENN 16
5 Hólmfríður Kristjánsdóttir VAKI 14
6 Guðrún S. Magnúsdóttir JÁVERK 11
7 Gústaf Loftsson VAKI 10
8 María Þórarinsdóttir SKÁLHOLTSSTAÐUR 9
9-10 Brynjar Jón Stefánsson JÁVERK 8
9-10 Cora Claas ÍSL. GRÆNMETI/HÓTEL FLÚÐIR 8
11-12 Knútur Ármann SKÁLHOLTSSTAÐUR 6
11-12 Líney Kristinsdóttir JÁVERK 6
13-15 Ingvar Hjálmarsson ÁRMENN 3
13-15 Katrín Rut Sigurgeirsdóttir JÁVERK 3
13-15 Kristbjörg Kristinsdóttir ÍSL. GRÆNMETI/HÓTEL FLÚÐIR 3
16 Grímur Sigurðsson ÚTLAGARNIR 2
Staðan í liðakeppninni eftir 3 greinar
Lið smali fjórg. fimmg. Heildarstig
Ármenn 8 15 13 36
ísl.grænm./hótel flúðir 9 13 13 35
Jáverk 10 9 9 28
Útlagarnir 10 10 7 27
Vaki 13 7 4 24
Skálholtsstaður 5 1 9 15
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH