Úrslit vetrarmóts Loga og Trausta
„Seinasta vetrarmót Loga og Trausta var haldið í Hrísholti laugardaginn 13. apríl. Hér má sjá úrslit þriðja mótsins og einnig samanlagt eftir mótin þrjú. Öll börn og unglingar sem skráðir voru í keppni voru úr Loga. Í vetur hefur viðrað vel til móta í Hrísholti og það var engin breyting á því að þessu sinni. Skráningar voru þokkalegar og að lokum var það Sigríður Magnea og Baugur frá Bræðratungu sem unnu barnaflokkinn. Unglingaflokkinn unnu Finnur Jóhannesson og Sóley frá Áskoti. Unghrossaflokkinn vann Sólon Morthens og að þessu sinni á Krumma frá Efsta-Dal, en í unghrossaflokki er það knapinn sem safnar stigum og getur því mætt á nýju hrossi. Það var svo Davíð Óskarsson og Síbíl frá Torfastöðum sem unnu fullorðinsflokkinn. Vetrarmótanefnd vill þakka öllum sem komu að mótinu með einum eða öðrum hætti fyrir vel unnin störf.
Barnaflokkur 3. vetrarmót
1. Rósa Kristín Jóhannesdóttir Sólveig frá Feti
2.Sölvi Freyr Jónasson Topprekur frá Torfastöðum
3. Sigríður Magnea Kjartansd. Baugur frá Bræðratungu
Barnaflokkur lokaúrslit eftir veturinn
1.Sigríður Magnea Kjartansd. Baugur frá Bræðratungu 148 stig
2.Rósa Kristín Jóhannesdóttir Sólveig frá Feti 148 –
3.Sölvi Freyr Jónasson Topprekur frá Torfastöðum 145 –
Unglingaflokkur 3. vetrarmót
1.Finnur Jóhannesson Sóley frá Áskoti
2.Marta Margeirsdóttir Þota frá Flekkudal
3.Karítas Ármann Glóð frá Sperðli
4.Inga Hanna Gunnarsdóttir Frumherji frá Kjarnholtum
5.Dóróthea Ármann Kópur frá Íbishóli
Unglingaflokkur lokaúrslit eftir veturinn
1.Finnur Jóhannesson Sóley frá Áskoti 149 stig
2.Marta Margeirsdóttir Þota frá Flekkudal 147 –
3.Karítas Ármann Glóð frá Sperðli 145 –
4.Inga Hanna Gunnarsdóttir Frumherji frá Kjarnholtum 140 –
5.Dóróthea Ármann Skugga-Baldur Friðheimum 47 –
6.Dóróthea Ármann Kópur frá Íbishóli 46 –
7.Katrín Rut Sigurgeirsdóttir Flotta-Skotta frá Fellskoti 45 –
Unghrossaflokkur 3. vetrarmót
1.Sólon Morthens Krummi Efsta-dal
2.Davíð Óskarsson Oddfríður frá Torfastöðum
3.Þórey Helgadóttir Sævar frá Eikarbrekku
4.Sölvi Freyr jónasson Valgautur Torfastöðum
5.Sigurður Halldórsson Gleði frá Hömrum
Unghrossaflokkur lokaúrslit eftir veturinn
1.Sólon Morthens Bergþóra frá Friðh/Glóð Dalsholti/Krummi efsta-dal 150 stig
2.Þórey Helgadóttir Sævar frá Eikarbrekku 143 –
3.Bjarni Bjarnason Stella frá Saltvík 97 –
4.Davíð Óskarsson Oddfríður frá Torfastöðum 95 -,“ segir í tilkynningu frá mótshöldurum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH