Útflutningur eykst jafnt og þétt
Útflutningur hefur verið að aukast jafnt og þétt síðustu árin en árið 2010 minnkaði útflutningur töluvert eftir að hestapestin geysaði víðsvegar um landið. Þegar skoðaðar eru tölur frá Bændasamtökum Íslands sem sýnir útflutning fyrstu 9 mánuði ársins 2010, 2011 og 2012 sést að aukning er jöfn og þétt. Þetta eru góðar fréttir fyrir „hestabransan“ í heild en greinilegt er að eitthver sala er í gangi og markaðurinn ekki að lognast útaf.
Fjöldi útfluttra hrossa 9 mánuði ársins:
2010: 557 hross
2011: 732 hross
2012: 803 hross
Upplýsingar fengnar frá Bændasamtökum Íslands
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH