Útilífstöltið í Meistaradeild Líflands og æskunnar

  • 11. mars 2023
  • Tilkynning

Það er komið að þriðja mótinu í Meistaradeild Líflands og æskunnar þetta tímabilið en keppt verður í tölti T1 á sunnudaginn í TM höllinni í Víðidal.

Fjörutíu keppendur í tíu liðum taka þátt í krefjandi keppni og hestakosturinn er frábær eins og sjá má á ráslistanum. Knaparnir eru á aldrinum 13-17 ára og eiga það sameiginlegt að
vera íþróttafólk með mikinn metnað fyrir því að æfa og þjálfa vel til að ná góðum árangri og safna í reynslubankann.

Mótið hefst á slaginu kl. 12.00 þegar fyrsti hestur kemur í braut. Kaffihús verður á staðnum með léttar veitingar á boðstólum og Alendis sýnir frá mótinu í beinu streymi í opinni dagskrá! MLÆ býður gesti og gangandi velkomna að líta við, fá sér kaffi og kruðerí á kaffihúsinu og kíkja á hestaíþróttamenn framtíðarinnar í keppni um leið.

Lífland er aðalstyrktaraðili deildarinnar og hefur verið frá upphafi. Töltmótið styrkir sportvöruverslunin sem allir þekkja, Útilíf.

Allar nánari upplýsingar um MLÆ fást á vef deildarinnar, www.mdeild.is og mótið er aðgengilegt í smáforritinu LH Kappa.

Ráslisti mótsins:

Nr. Knapi Lið Félag Hestur
Tölt T1 Unglingaflokkur
1 Kristín María Kristjánsdóttir Réttverk/Deloitte Sleipnir Mjölnir frá Garði
2 Gabríel Liljendal Friðfinnsson Team Top Reiter Fákur Lávarður frá Egilsá
3 Sara Dís Snorradóttir Kambur Sörli Aris frá Stafholti
4 Herdís Björg Jóhannsdóttir Íshestar Sprettur Kvarði frá Pulu
5 Fanndís Helgadóttir Ragnheiðarstaðir Sörli Ötull frá Narfastöðum
6 Guðný Dís Jónsdóttir Team Hofsstaðir/Ellert Skúlason ehf. Sprettur Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ
7 Kolbrún Katla Halldórsdóttir Hestaval/Icewear Borgfirðingur Karen frá Hríshóli 1
8 Bjarndís Rut Ragnarsdóttir Brjánsstaðir /Gröf Sörli Andvari frá Skipaskaga
9 Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson Hrímnir/Hest.is Sprettur Polka frá Tvennu
10 Fríða Hildur Steinarsdóttir Sólvangur Geysir Neisti frá Grindavík
11 Andrea Óskarsdóttir Réttverk/Deloitte Fákur Hermann frá Kópavogi
12 Róbert Darri Edwardsson Team Top Reiter Geysir Akkur frá Eyjarhólum
13 Sigrún Helga Halldórsdóttir Kambur Fákur Gefjun frá Bjargshóli
14 Þorbjörg H. Sveinbjörnsdóttir Íshestar Sprettur Ísó frá Grafarkoti
15 Sigurbjörg Helgadóttir Ragnheiðarstaðir Fákur Elva frá Auðsholtshjáleigu
16 Svandís Aitken Sævarsdóttir Team Hofsstaðir/Ellert Skúlason ehf. Sleipnir Fjöður frá Hrísakoti
17 Kristín Karlsdóttir Hestaval/Icewear Fákur Frú Lauga frá Laugavöllum
18 Þórdís Agla Jóhannsdóttir Brjánsstaðir /Gröf Sprettur Salvör frá Efri-Hömrum
19 Ragnar Snær Viðarsson Hrímnir/Hest.is Fákur Ási frá Hásæti
20 Þórhildur Lotta Kjartansdóttir Sólvangur Geysir Göldrun frá Hákoti
21 Selma Dóra Þorsteinsdóttir Réttverk/Deloitte Fákur Óðinn frá Hólum
22 Apríl Björk Þórisdóttir Team Top Reiter Sprettur Sikill frá Árbæjarhjáleigu II
23 Ásta Hólmfríður Ríkharðsdóttir Kambur Sprettur Komma frá Traðarlandi
24 Embla Lind Ragnarsdóttir Íshestar Sleipnir Mánadís frá Litla-Dal
25 Eydís Ósk Sævarsdóttir Ragnheiðarstaðir Hörður Heiða frá Skúmsstöðum
26 Helena Rán Gunnarsdóttir Team Hofsstaðir/Ellert Skúlason ehf. Máni Hekla frá Hamarsey
27 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Hestaval/Icewear Snæfellingur Þytur frá Stykkishólmi
28 Unnur Rós Ármannsdóttir Brjánsstaðir /Gröf Háfeti Ástríkur frá Hvammi
29 Dagur Sigurðarson Hrímnir/Hest.is Geysir Garún frá Þjóðólfshaga 1
30 Elsa Kristín Grétarsdóttir Sólvangur Sleipnir Arnar frá Sólvangi
31 Camilla Dís Ívarsd. Sampsted Réttverk/Deloitte Fákur Vordís frá Vatnsenda
32 Elísabet Líf Sigvaldadóttir Team Top Reiter Geysir Askja frá Garðabæ
33 Lilja Rún Sigurjónsdóttir Kambur Fákur Sigð frá Syðri-Gegnishólum
34 Lilja Dögg Ágústsdóttir Íshestar Geysir Nökkvi frá Litlu-Sandvík
35 Kristín Eir Hauksdóttir Holake Ragnheiðarstaðir Borgfirðingur Þytur frá Skáney
36 Elva Rún Jónsdóttir Team Hofsstaðir/Ellert Skúlason ehf. Sprettur Fluga frá Garðabæ
37 Kolbrún Sif Sindradóttir Hestaval/Icewear Sörli Hallsteinn frá Hólum
38 Hulda Ingadóttir Brjánsstaðir /Gröf Sprettur Sævar frá Ytri-Skógum
39 Matthías Sigurðsson Hrímnir/Hest.is Fákur Dýri frá Hrafnkelsstöðum 1
40 Hrefna Kristín Ómarsdóttir Sólvangur Fákur Dímon frá Álfhólum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar