„Útlitið skilur á milli“
Eyrún frá Fákshólum, sýnandi, ræktandi og eigandi er Helga Una Björnsdóttir. Mynd: Lina
Árbók Eiðfaxa 2023 kemur út í næstu viku, stútfull af fróðlegum og skemmtilegum umfjöllunum. Meðal efnis í Árbókinni er viðtal við þau ræktendur í Fákshólum, Helgu Unu Björnsdóttur og Jakob Svavar Sigurðsson og ræktendur í Þúfum, Mette Mannseth og Gísla Gíslason en bæði búin voru útnefnd Ræktunarbú ársins 2023.
Í viðtali við þau Helgu Unu og Jakob fara þau m.a. yfir hverjar áherslur þeirra séu í ræktuninni
„Fyrst og fremst erum við að vonast eftir að hrossin sem við fáum séu hestar sem nýtast og það getur verið breiður hópur af hrossum. Við erum bæði sammála því að vilja rækta hross sem eru fljót til. Að þetta séu miklir eðlisgæðingar og heil í hausnum,“ segir Jakob og Helga bætir við að geðslagið skipti þau miklu máli sem og útlitið. „Staðan í dag er þannig að útlitið skilur á milli. Þetta þurfa að vera myndarleg hross. Skiptir máli að þau séu með sterka og góða yfirlínu. Við stílum mikið inn á það og erum að reyna búa til og halda undir hesta sem eru geðgóðir,“ segir Helga.
Við munum halda áfram næstu daga að kynna meira efni úr Árbókinni, enda af nægu að taka. Gera má ráð fyrir að Árbókin komi inn um bréfalúgur áskrifenda í lok næstu viku og verður hún í framhaldinu einnig fáanleg í öllum helstu hestavöruverslunum. Ekki missa af Árbók Eiðfaxa!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum