Val kynbótahrossa inn á Landsmót
Sama fyrirkomulag verður við val kynbótahrossa inn á Landsmót í ár og fyrir tvö síðustu mót og verður það ákveðinn fjöldi efstu hrossa sem vinnur sér þátttökurétt á mótið. Ákveðið var að hafa sama fjölda í hverjum flokki og var á síðasta móti og verður því miðað við að hafa 170 kynbótahross á mótinu, fjöldann í hverjum flokki má sjá í töflu hér að neðan.
Ákveðið var að velja u.þ.b. 75% hrossa í hverjum flokki eftir aðaleinkunn og 25% hrossa eftir aðaleinkunn án skeiðs. Þetta þýðir að í flokki þar sem 20 efstu hrossin vinna sér þátttökurétt á mótinu, að 15 efstu verða valin á grunni aðaleinkunnar og 5 efstu á grunni aðaleinkunnar án skeiðs. Stöðulisti er birtur í WorldFeng sem sýnir hvaða hross eru inni á mótinu hverju sinni. Ef fleiri en eitt hross eru jöfn í síðasta sæti inn á mótið (til dæmis fleiri en ein hryssa í 15. sæti í flokki 7 vetra og eldri hryssna) þá er þeim öllum heimil þátttaka á mótinu. Eigendur hrossa sem vinna sér þátttökurétt á mótinu en ætla sér ekki að mæta með þau af einhverjum ástæðum eru beðnir um að láta vita fyrir 22. júní þannig að hægt sé að bjóða hrossum sem eru neðar á listanum þátttöku á mótinu.
Skráningu hrossa á mótið lýkur á hádegi 24. júní.
Fjöldi hryssna á mótinu
- 7v. og eldri hryssur: 15
- 6v. hryssur: 30
- 5v. hryssur: 30
- 4v. hryssur: 20
Fjöldi stóðhesta á mótinu
- 4v. hestar: 20
- 5v. hestar: 20
- 6v. hestar: 20
- 7v. og eldri hestar: 15
Samtals: 170
Afkvæmasýndir stóðhestar:
Lágmörk vegna afkvæmasýninga miðast við kynbótamat stóðhestanna eins og það liggur fyrir að afloknum kynbótasýningum vorið 2022. Reglur um afkvæmaverðlaun stóðhesta eru sem hér segir en heiðursverðlaunahestum þurfa að fylgja 10 afkvæmi í sýningunni á Landsmóti og fyrstu verðlauna hestum þurfa að fylgja 6 afkvæmi:
Lágmörk til verðlauna fyrir afkvæmi eru sem hér segir:
- Stóðhestar 1. verðlauna fyrir afkvæmi:
118 stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunn eða aðaleinkunn án skeiðs og a.m.k. 15 dæmd
afkvæmi - Stóðhestar heiðursverðlaun:
118 stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunn eða aðaleinkunn án skeiðs og a.m.k. 50 dæmd
afkvæmi
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH