Valsa hæst dæmd á Axevalla
Valsa og Magnús Skúlason á HM2017
Kynbótasýning á Axevalla í Svíþjóð fór fram 1.-3.júlí þar sem sýnd voru 44 hross og þar af 38 í fullnaðardómi. Dómarar voru Elsa Albertsdóttir, Nina Bergholtz og Sveinn Ragnarsson.
Hæst dæmda hross sýningarinnar er Valsa från Brösarpsgården sýnandi hennar var Magnús Skúlason sem einnig er eigandi ásamt Vigdisi Fanneyju Magnúsdottir Skúlason. Valsa er undan Aski fra Hakangsgarden og Vordísi frá Ási I og er hún 12.vetra gömul. Valsa hlaut fyrir sköpulag 8,04, fyrir hæfileika 8,35 og í aðaleinkunn 8,24. Hún hlaut m.a. einkunnina 9,5 fyrir skeið og 9,0 fyrir samstarfsvilja.
Hér fyrir neðan má sjá öll hross á sýningunni raðað eftir aðaleinkunn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH