Vangaveltur á mánudegi – Er ekki mál að linni?

  • 29. nóvember 2010
  • Fréttir
Vangaveltur á mánudegi - Er ekki mál að linni?

Eins og oft áður er mér hugleikið staðarval landsmóta, en ég er áhugamaður um uppbyggingu mótssvæða fyrir hestamenn…

og hef m.a. endurhannað mótssvæðið á Gaddstaðaflötum fyrir fjórðungsmót 1991 og Vindheimamela fyrir landsmót 2000.
Er það skoðun mín að byggða eigi upp góða aðstöðu til að stunda hestamennsku sem víðast á landinu.
Vangaveltur mínar snúast um þau þing okkar hestamanna, sem nú nýlega eru afstaðin þ.e.a.s. landsþing L.H. og aðalfund Félags hrossabænda. Það er skoðun flestra sem hafa tjáð sig um ársþing L.H. að sáttatónn hafi ríkt á þinginu og að nú vilji fólk sjá „landsmótssnefndina” koma með sáttatillögur um framtíð landsmóta þannig að sem flestir geti við unað. En „landsmótsnefndin” var skipuð af stjórn L.H. stuttu fyrir þingið einmitt í þessum tilgangi.
Það sem ég vil benda á er tillaga sem Hestamannafélagið Geysir lagði fram á landsþinginu þess efnis að Landsmót hestamanna skuli haldin annað hvert ár, til skiptis á einum stað á Norðurlandi og einum stað á Suðurlandi. Þessari tillögu var beint til „landsmótsnefndar”.
Sambærileg tillaga var lögð fram á aðalfundi Félags hrossabænda af Hrossaræktar-sambandi Skagfirðingar, en hún gekk enn lengra og tilgreindi staðina, Vindheimamela og Gaddstaðaflati og vildi að þeir yrðu festir í sessi næstu 10-15 árin.
Þessari tillögu var vísað frá með 19 atkvæðum gegn 11.
Það er því ekki vilji Félags hrossabænda að landsmótsstaðirnir næstu 10-15 árin skuli einungis vera Vindheimamelar og Gaddstaðaflatir og treysti ég því að fulltrúi Félags hrossabænda í „landsmótssnefndinni” Kristinn Guðnason og fulltrúi Bændasamtaka Íslands, Guðlaugur Antonsson, vinni eftir þessari samþykkt.

Og í framhaldi af því segi ég, er ekki mál að linni Skagfirðingar og Gaddstaða-flatamenn? Getið þið ekki látið af þessum eiginhagsmunum, horft til hagsmuna heildarinnar, rétt fram sáttahönd og unnt öðrum að halda landsmót öðru hvoru?

Jónas Vigfússon
Litla-Dal, Eyjafirði
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link