„Varð gæðingur strax og er gæðingur enn“
Adrían frá Garðshorni á Þelamörk er sigurvegari í B-flokki gæðinga á Fjórðungsmóti en knapi hans var Daníel Jónsson. Sætaröðun dómara þurfti til að skera úr um sigur á milli hans og Tuma frá Jarðbrú sem Þórarinn Eymundsson sýndi.
Eiðfaxi tók Daníel spjalli að úrslitum loknum þar sem hann hafði frá ýmsu skemmtilegu að segja. Viðtalið má skoða í spilaranum hér að ofan.
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1-2 | Adrían frá Garðshorni á Þelamörk / Daníel Jónsson | 8,99 |
| 1-2 | Tumi frá Jarðbrú / Þórarinn Eymundsson | 8,99 |
| 3 | List frá Þúfum / Mette Mannseth | 8,83 |
| 4 | Þorsti frá Ytri-Bægisá I / Sigurður Sigurðarson | 8,75 |
| 5 | Steggur frá Hrísdal / Siguroddur Pétursson | 8,69 |
| 6 | Melódía frá Hjarðarholti / Elín Magnea Björnsdóttir | 8,64 |
| 7 | Blundur frá Þúfum / Gísli Gíslason * | 8,28 |
| 8 | Eyja frá Hrísdal / Guðný Margrét Siguroddsdóttir * | 8,17 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Hraði sigurvegari A-flokks á Norðurlandamóti