Veisla í A-flokki gæðinga – video

  • 4. júlí 2011
  • Fréttir
Veisla í A-flokki gæðinga - video

Það skiptust á skin og skúrir í úrslitum í A-flokki gæðinga. Fyrirfram var Ómur frá Kvistum sigurstranglastur, þótt í úrslitum hefðu verið mætt átta af hæfileikaríkustu hrossum landsins í ár. Heljar frá Hemlu II, og Vignir Siggeirsson sem í fyrra sigraði eitt af stærstu mótum síðasta árs, Stórmót gæðinga á Hellu, náðu sér ekki á strik, Heljar lá t.d. í hvorugum skeiðsprettinum og lauk keppni í 8. sæti. Skeiði fipaðist einnig hjá Stakk frá Halldórsstöðum og Sigurbirni Bárðarsyni sem hafnaði í 6. sæti. Hnokki frá Þúfum og Mette Mannseth voru hins vegar enn heit eftir sigurinn í B-úrslitunum og fengu að lokum brons. Álmur frá Skjálg og Sigursteinn Sumarliðason voru í miklu stuði og hlutu m.a. hæstu einkunn keppenda í skeiði, 9,12. Hins vegar komst enginn þar sem Ómur frá Kvistum hafði hælanna. Þessi glæsilegi hestur geislaði alla keppnina og sigraði örugglega með lokaeinkunn upp á 8,98. 

r á myndbandavef Eiðfaxa má nú sjá myndskeið frá þessum skemmtilega lokadagskrálið Landsmótsins.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link