Vel heppnað Hvítasunnumót á Hellu
Sólon Morthens og Katalína á Gæðingamóti á Flúðum árið 2020. mynd: Stikla Photography/Bára Másdóttir
WR íþróttamót Geysis fór fram nú um Hvítasunnuhelgina á Rangárbökkum við Hellu. Keppt var í hefðbundnum greinum íþróttakeppninnar auk skeiðgreina. Árangur knapa á mótinu var góður og á þessum fyrstu mótum sumarsins má marka það að breiddin er alltaf að aukast í hestakosti. Það vekur athygli að boðið var upp á léttari greinar í Meistaraflokki.
Í skeiðgreinum náðust góðir tímar en í 100 metra skeiði var Jakob Svavar Sigurðsson á Jarli frá Kílhrauni fljótastur á tímanum 7,76 sekúndum. Árni Björn Pálsson átti gott mót í skeiðgreinum en hann vann keppni í 150 metra skeiði á Seið frá Hlíðarbergi á tímanum 14,85 sekúndum en hann varð að auki annar í 250 metra skeiði á Ögra frá Horni á 22,03 sekúndum í þeirri grein var það Sigursteinn Sumarliðason á Krókusi frá Dalbæ sem sigraði á frábærum tíma, 21,68 sekúndum.
Í hringvallargreinum má nefna að Sólon Morthens stóð efstur í tölti (T1) með 7,89 í einkunn í úrslitum. Hulda Gústafsdóttir og Sesar frá Lönguskák fóru með sigur af hólmi í fjórgangi (V1) með 7,40 í einkunn og í fimmgangi (F1) var það Ólafur Andri Guðmundsson á Kolbaki frá Litla-Garði sem varð efstur með 7,21 í einkunn. Í slaktaumatölti var það Páll Bragi Hólmarsson sem varð efstur á Óperu frá Austurkoti með 7,46 í einkunn.
WR Íþróttamót Geysis allar niðurstöður
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum