Vel heppnað IceHorse Festival 2023
IceHorse Festival haldið í Herning í Danmörku dagana 30. mars – 2. apríl. Gríðarleg ásókn var á mótið eða voru í heildina seldir um 3.000 miðar. Þétt dagskrá var keyrð frá morgni til kvölds alla dagana og mátti sjá heilmikið af frábærum hestum og knöpum. Í topp baráttunni voru bæði brottfluttir hestar í bland við hesta sem ræktaðir voru úti. Á meðal þeirra fyrrnefndu má m.a. nefna Arthúr frá Baldurshaga, Viðar frá Skör, Takt frá Vakurstöðum, Kveik frá Stangarlæk, Flaum frá Sólvangi og Fenri frá Feti. Af þeim síðarnefndu vöktu Evert fra Slippen, Hæmir fra Hyldbæk, Gustur vom Kronshof, Abel fra Tyrevoldsdal og Muni fra Bendstrup mesta athygli.
Mótið var haldið inni í MCH Arena sem er ein af fjölmörgum viðburðar höllum svæðinu. Í grunnin er höllin með steypt gólf en búinn var hreinlega til hringvöllur inni á steypunni með því að bera in efni í tonnavís. Skiptar skoðarnir voru á undirlaginu og sögðu sumir það mjög gott en öðrum fannst það þungt. Sitt hvoru megin við langhliðarnar voru stúkur sem rúmuðu 2500 manns og við aðra skammhliðina var feikna stórt svæði sem fullt var af sölu- og sýningarbásum. Þar á meðal var bás HorseDay smáforritsins en voru þau eitt af styrktaraðilum mótsins. Starfsfólk HorseDay var viðstatt hátíðina eftir að hafa keyrt upp frá Þýskalandi þar sem þau voru í kynningarferð. Oddur Ólafsson, stofnandi og framkvæmdastjóri HorseDay, skrifaði undir samning við IPZV um komandi samstarf og hélt m.a. kynningu fyrir gesti mótsins um virkni appsins ásamt því að hitta notendur. Meðal annarra áhugaverðra bása voru Öllöv skeifur, hestaflutningabílar og Equsana nammibar sem sló rækilega í gegn.
Það sem stóð uppúr af hátíðinni, fyrir utan frábæran hestakost, var umgjörð og utanumhald mótsins. Það var einstaklega gaman að sjá íþróttina hífða upp á annað plan með fyrirhöfn, skipulagi og fagmennsku. Dagskráin var þétt og vel skipulögð, aðstaðan engri lík og gríðarlega gaman var að sjá svona mikin fjölda fólks koma saman og fagna hestinum og íþróttinni okkar. Fagmennska að hálfu knapa og starfsfólks var áberandi og allt virtist að minnsta kosti vera upp á 10. Til þess að geta haldið mót á þessari stærðargráðu þarf mikið skipulag og rann skráningarfrestur út þremur mánuðum fyrir mótið að sögn keppenda. Að vísu er fjármagn einnig grunnforsenda fyrir móti sem þessu og var IceHorse Festival ansi kostnaðarsamt mót fyrir bæði knapa og áhorfendur.
Á töflunni hér fyrir neðan má sjá verðskrá fyrir keppendur en innifalið í skráningargjaldinu er aðgangur að stíu í annari viðburðarhöll rétt við og aðgangur að öllu mótinu. Áhorfendur gátu keypt sér dagpassa frá 4000-8000 ISK og passa á allt mótið á u.þ.b. 14.000 ISK. Síðast en ekki síst stóð til boða að kaupa sér borð á VIP svæði en kostaði það um 400.000 ISK og sæti fyrir 6 manns.
| Verðskrá IceHorse 2023 | DK | ISK |
|---|---|---|
| Skráningargjald | 2.400 | 48.432 |
| Verð fyrir hverja grein | 700 | 14.126 |
| Verð í B greinar (V2, F2, T3 o.s.frv.) | 500 | 10.090 |
| Breytingargjald eftir 1. febrúar | 350 | 7.063 |
| Afskráningargjald | 500 | 10.090 |
| Auka spænir | 175 | 3.532 |
| Að láta tæma fyrir sig stíuna í lok keppni | 300 | 6.054 |
| Skráning hestasveins, aðstoðarmanns | 450 | 9.081 |
Heilt yfir var IceHorse heilmikil skemmtun og upplifun og við bíðum spennt eftir að geta haldið mót á þessu kaliberi hér á Íslandi!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH