Velheppnað vormót
Mikil tilþrif sáust á Akureyri á laugardaginn þegar sterkir norðlenskir reiðmenn kepptu í vormóti hestamannafélagsins Léttis.
Baldvin Ari Guðlaugsson var í miklu stuði, sigraði bæði tölt og fjórgang 1. flokks og var í öðru sæti fimmgangskeppni 1. flokks. Í fimmgang fór Vignir Sigurðsson þó með sigur af hólmi en Lilja Pálmadóttir gerði vann sig upp úr B-úrslitum í annað sæti í fjórgangi.
Fanndís Viðarsdóttir sigraði fjórgang ungmennaflokks á Amöndu Völu frá SKriðulandi og Stefaní Árdís Árnadóttir stóð uppi sem sigurvegari töltkeppni ungmenna á Væntingu frá Akurgerði.
Öll úrslit vormótsins hér meðfylgjandi:
Töltkeppni
A úrslit Ungmennaflokkur –
1 Stefanía Árdís Árnadóttir / Vænting frá Akurgerði 7,00
2 Þóra Höskuldsdóttir / Steinar frá Sámsstöðum 6,89
3 María Marta Bjarkadóttir / Víkingur frá Úlfsstöðum 6,56
4 Fanndís Viðarsdóttir / Spænir frá Hafrafellstungu 2 6,50
5 Ágústa Baldvinsdóttir / Orka frá Efri-Rauðalæk 6,00
Töltkeppni
A úrslit 1. flokkur –
1 Baldvin Ari Guðlaugsson / Senjor frá Syðri-Ey 7,50
2 Helga Árnadóttir / Ás frá Skriðulandi 7,28
3 Úlfhildur Sigurðardóttir / Sveifla frá Hóli 7,17 H
4 Guðmundur Karl Tryggvason / Sóldís frá Akureyri 7,17 H
5 Helgi Þór Guðjónsson / Bergur frá Kolsholti 2 6,89
6 Einar Víðir Einarsson / Líf frá Kotströnd 6,44
Töltkeppni
B úrslit 1. flokkur –
1 Atli Sigfússon / Krummi frá Egilsá 6,94
2 Vignir Sigurðsson / Gjafar frá Syðra-Fjalli I 6,89
3 Einar Víðir Einarsson / Líf frá Kotströnd 6,61
4 Lina Erikson / Brattur frá Tóftum 6,44
5 Ingólfur Jónsson / Negla frá Hellulandi 6,39
6 Guðlaugur Arason / Logar frá Möðrufelli 6,33
Fjórgangur
A úrslit Ungmennaflokkur –
1 Fanndís Viðarsdóttir / Amanda Vala frá Skriðulandi 6,57
2 Ólafur Ólafsson Gros / Fjöður frá Kommu 6,43
3 Þóra Höskuldsdóttir / Steinar frá Sámsstöðum 6,33
4 Árni Gísli Magnússon / Ægir frá Akureyri 6,20
5 María Marta Bjarkadóttir / Víkingur frá Úlfsstöðum 6,10
Fjórgangur
A úrslit 1. flokkur –
1 Baldvin Ari Guðlaugsson / Öngull frá Efri-Rauðalæk 7,53
2 Lilja S. Pálmadóttir / Mói frá Hjaltastöðum 7,37
3 Úlfhildur Sigurðardóttir / Sveifla frá Hóli 6,67
4 Þorbjörn Hreinn Matthíasson / Hrollur frá Grímsey 6,57
5 Vignir Sigurðsson / Auður frá Ytri-Hofdölum 6,40
6 Helga Árnadóttir / Skorri frá Skriðulandi 6,37
7 Atli Sigfússon / Krummi frá Egilsá 6,27
Fjórgangur
B úrslit 1. flokkur –
1 Lilja S. Pálmadóttir / Mói frá Hjaltastöðum 7,03
2 Guðlaugur Arason / Logar frá Möðrufelli 6,20
3 Guðmundur S Hjálmarsson / Einir frá Ytri-Bægisá I 6,03 H
4 Anna Catharina Gros / Sátt frá Grafarkoti 6,03 H
5 Þórdís Þórisdóttir / Ketill frá Leysingjastöðum II 5,90
Fimmgangur
A úrslit 1. flokkur –
1 Vignir Sigurðsson / Spói frá Litlu-Brekku 6,86
2 Baldvin Ari Guðlaugsson / Jökull frá Efri-Rauðalæk 6,74
3 Bjarni Páll Vilhjálmsson / Freyþór frá Hvoli 6,71
4 Þórhallur Þorvaldsson / Hildur frá Litlu-Brekku 6,50
5 Þorbjörn Hreinn Matthíasson / Gígja frá Litla-Garði 6,48
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH