Verðlaunafé til sænskra kynbótahrossa

  • 11. desember 2021
  • Fréttir

Alma från SundsbergsKval er dæmi um hryssu sem fær bæði verðlaun fyrir að vera hæst dæmda fjögurra vetra hryssa ársins í Svíþjóð sem og að vera með yfir 8,0 í aðaleinkunn fjögurra vetra. Mynd: SIF Avel

Samstarfs verkefni Agria og SIF Avel í Svíþjóð

Nýjung er í ár í Svíþjóð en frá og með árinu 2021 fá hæst dæmdu fjögurra, fimm og sex vetra stóðhestar og hryssur ársins 10.000 sænskar krónur í verðlaunafé sem skal vera deilt á milli ræktenda og eigenda. Þetta er u.þ.b. 144.000 ísl.kr

Einnig munu öll fjögurra vetra hross sem fá 8,00 eða hærra í aðaleinkunn fá að verðlaunum 5.000 sænskar kr. (u.þ.b. 72.000 ísl.kr) til að deila á milli ræktenda og eigenda.

Það er ekki það eina því öll hross sem hljóta yfir 9,00 fyrir hæfileika fá 50.000 sænskar kr. (u.þ.b. 720.000 ísl.kr) í verðlaun.

Verðlaunin eru samstarf á milli Agria og SIF Avel (ræktunarsamtakana í Svíþjóð).

Þessi verðlaun eru einungis veitt kynbótahrossum sem eru fædd í Svíþjóð.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link