„Verðum að vera á tánum“ segir formaður landsliðsnefndar
Veikindi í hrossum auk atviks sem átti sér stað í liðinni viku er ungur maður sendi heim erlendis frá,..
óhreinan reiðfatnað og eitthvað af reiðtygjum hefur vakið upp mikla umræðu um hvernig sóttvörnum okkar er háttað. Töluvert er um að tamningafólk og reiðkennarar fari erlendis þeirra erinda að þjálfa hross og kenna reiðmennsku og er þá undir samvisku hvers og eins hvernig hann eða hún stendur að þessum málum.
Eini stóri hópurinn sem fer erlendis sérstaklega til þess að vera innan um hross er landslið Íslands í hestaíþróttum. Eiðfaxi hafði samband við Bjarnleif Bjarnleifsson formann landsliðsnefndar.
Hvernig er sóttvarnarmálum landsliðs háttað?
„Í samningi sem knapar undirrita er þeir koma inn í landsliðið, er ákvæði um það að þeir eigi í einu og öllu að fara eftir lögum og reglum um sóttvarnir“.
Hvað verður um reiðjakkana eftir mótslok?
„Jakkarnir fara beint ofaní tösku sem er svo ekki opnuð fyrr en í hreinsunarfyrirtæki hér á landi sem hreinsar þá“.
Hvað með annan búnað eins og til dæmis mél sem knapar taka með sér á mót?
„Allur búnaður og fatnaður sem tilheyrir knöpunum sjálfum, eiga þeir að sjá um að sótthreinsa. Við getum ekki verið að skoða ofaní töskur fólks, það verður að ríkja traust milli landsliðsnefndar og knapa og við treystum þeim til þess að fara eftir öllum reglum. Við erum með dýralækni með okkur sem gefur knöpunum ráðleggingar.
Það er hinsvegar augljóst að alltaf má bæta sig. Verið er að fara yfir þessi mál og hugsanlega verða einhverjar breytingar gerðar á fyrirkomulagi. Í ljósi þeirra atburða sem hér hafa hent á þessu ári er það ljóst að við þurfum að vera á tánum“ sagði Bjarnleifur að lokum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH