Vesturlandsdeildin á fimmtudaginn
Fimmtudaginn 10. mars fer fram slaktaumatölt T2 í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum. Keppnin fer fram í Faxaborg, reiðhöllinni í Borgarnesi og hefst kl. 19:00. Slaktaumatöltið er í boði Arion banka og hvetur stjórn Vesturlandsdeildarinnar alla til að mæta í stúkuna og eiga saman skemmtilega kvöldstund.
Aðgangseyrir er 1000 kr og frítt er fyrir 12 ára og yngri. Fyrir þá sem sjá sér ekki fært að mæta í stúkuna þá verður viðburðinum að sjálfsögðu streymt á https://alendis.tv/
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH