Vesturlandsdeildin á föstudaginn
Föstudaginn 8. apríl verður keppt í fimmgangi í Vesturlandsdeildinni. Fimmgangurinn er í boði Cintamani og hefst keppnin kl. 19:00. Stjórn Vesturlandsdeildarinnar hvetur fólk til að fjölmenna í stúkuna í reiðhöllinni í Borgarnesi og eiga saman skemmtilega kvöldstund. Aðgangseyrir er 1000 kr og frítt fyrir 12 ára og yngri.
Viðburðinum verður einnig streymt á alendis.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH