Vesturlandssýning í Faxaborg
„Fulltrúar hestamannafélaga á Vesturlandi og Hrossaræktarsambands Vesturlands efna til sýningar í Borgarnesi
Fulltrúar hestamannafélaga á Vesturlandi og Hrossaræktarsambands Vesturlands hafa ákveðið að efna til Vesturlandssýningar í reiðhöllinni Faxaborg, Borgarnesi, laugardaginn 23. mars n.k. Þetta er þriðja árið í röð sem Vesturlandssýningin er haldin í Faxaborg en mikil ánægja var með Vesturlandssýninguna 2011 og 2012 og mun því allt kapp verða lagt á að sýningin í ár verði sem glæsilegust.
Á sýningunni munu koma fram vestlenskir gæðingar og dæmi um sýningaratriði
eru sýningar hjá börnum og unglingum, ásamt fimmgangs og fjórgangshestum,
skeiði, tölti, kynbótahrossum og ræktunarbúum ásamt mörgum fleiri atriðum með
góðum gestum. Dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.
Þeir sem hafa ábendingar um atriði eða hross, sem eiga erindi á sýninguna geta
komið þeim á framfæri við eftirfarandi aðila:
Arnar Ásbjörnsson, HYPERLINK „mailto:[email protected]“ [email protected], gsm: 841-8887
Hlöðver Hlöðversson, HYPERLINK „mailto:[email protected]“ [email protected], gsm: 661-7308
Stefán Ármannsson, HYPERLINK „mailto:[email protected]“ [email protected], gsm: 897-5194
Heiða Dís Fjelsted, HYPERLINK „mailto:[email protected]“ [email protected], gsm: 862-8932 (tengiliður vegna barna og unglinga),“ segir í tilkynningu frá Undirbúningsnefnd
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH