Vetrarmót Smára

  • 18. febrúar 2013
  • Fréttir
Vetrarmót Smára

Fyrsta Vetrarmót Smára fór fram laugardaginn 16. Febrúar, að Flúðum. Veðrið lék við knapa, hesta og áhorfendur þar sem sólin vermdi vanga.

Pollaflokkur hóf keppnina inni í reiðhöllinni en þar tóku Hjörtur Snær Halldórsson á Ljúf frá Hrepphólum og Jón Valgeir Ragnarsson á Erli frá Hafnarfirði þátt og stóðu sig með prýði. 
 
Þá var komið að því að fara út í sólina því unghrossaflokkurinn var næstur á dagskrá en unghrossin eru fædd 2008 og 2009. Eftir þau tók hver flokkurinn við af öðrum og var gaman að því hversu mikil þátttaka var í öllum flokkum. Úrslit urðu eftirfarandi:
 
Unghrossaflokkur:
1.Hannes Gestsson og Rjóð frá Kálfhóli II 
2.Helgi Kjartansson og Kríma frá Hvammi I
3.Gunnlaugur Bjarnason og Jóra frá Húsatóftum 
4.Einar Logi Siggeirsson og Þróttur frá Miðfelli
5.Berglind Ágústsdóttir og Ísbjörg frá Efra-Langholti
6.Guðjón Hrafn Sigurðarson og Muggur frá Kaldbak
 
Barnaflokkur:
1.Kela Salóme Magnúsdóttir og Hróðný frá Blesastöðum 
2.Halldór Fjalar Helgason og Þokki frá Hvammi I 
3.Þorvaldur Logi Einarsson og Fákur frá Miðfelli
4.Aron Ernir Ragnarsson og Þyrnir frá Garði
5-6 Laufey ósk Grímsdóttir og Iðunn frá Ásatúni
5-6 Þórey Þula Helgadóttir og Kylja frá Hvammi I 
 
Ungmennaflokkur:
1.Eiríkur Arnarsson og Móhildur frá Blesastöðum
2.Karen Hauksdóttir og Hrafnkatla frá Blesastöðum
3.Sigurbjörg Bára Björnsdóttir og Silfurdís frá Vorsabæ II
4.Guðjón Örn Sigurðsson og Gola frá Skollagróf
5.Gunnlaugar Bjarnason og Andri frá Blesastöðum IIA
 
Unglingaflokkur:
1.Hrafnhildur Magnúsdóttir og Eyvör frá Blesastöðum 
2.Guðjón Hrafn Sigurðarson og Sóley frá Syðri-Hofdölum
3.Helgi Valdimar Sigurðsson og Hending frá Skollagróf
4.Björgvin Ólafsson og Sveipur frá Hrepphólum 
5.Björgvin Viðar Jónsson og Líf frá Bergsstöðum
 
2. flokkur fullorðina: 
1.Haukur Már Hilmarsson og Glanni frá Steinum
2.Loftur Magnússon og Kantur frá Helgastöðum
3.Jón Bjarnason og Kjarkur frá Skipholti
 
1. flokkur fullorðina:
1.Bragi Gunnarsson og Bragur frá Túnsbergi
2.Gestur Þórðarson og Garpur frá Kálfhóli II
3.Berglind Ágústsdóttir og Reisn frá Blesastöðum 
4.Ragnar S. Geirsson og Þoka frá Reyðará
5.Hannes Gestsson og Nös frá Kálfhóli II
6.Erna Óðinsdóttir og Þöll frá Hvammi I
7.Guðmann Unnsteinsson og Röst frá Hvammi I
8.Gunnar Örn Marteinsson og Hörður frá Steinsholti II
9.Gunnar Jónsson og Jarl frá Skeiðháholti III
10.Hulda Hrönn Stefánsdóttir og Gyðja frá Hrepphólum
 
 
Mótanefnd vill þakka öllum þeim sem komu að undirbúningi og störfum á mótinu, dómurum og þá sérstaklega knöpum og hestum sem skemmtu öllum svo vel í dag.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link