Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Vetrarmótaröð Skagfirðings

  • 27. janúar 2022
  • Fréttir
Skráning í liðakeppni Vetrarmótaraðar Skagfirðings að hefjast

Opin Vetrarmótaröð Skagfirðings fer að hefjast í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki, en fyrsta mót vetrarins verður B-flokkur laugardaginn 5. febrúar. Skráning í liðakeppnina fer fram á netfangið [email protected] eða sími 896-6887. Fram þarf að koma 1 liðsstjóri (með netfang og símanúmer). Skráningarfrestur í liðakeppnina er til 27.jan. Skráning í B-flokkinn verður auglýst síðar.

Drög að dagskrá:
5.febrúar – Gæðingakeppni – 1.flokkur, 2.flokkur og ungmennaflokkur B-flokkur, Unglingaflokkur og barnaflokkur
19.febrúar – 1.flokkur og ungmennaflokkur V2, 2.flokkur, börn og unglingar V5
5.mars – 1.flokkur, 2.flokkur og ungmenni F2 og T4 Unglingar og börn T8
19.mars – 1.flokkur, 2.flokkur og ungmenni T3 Barna og unglingaflokkur T7
2.apríl – Gæðingakeppni 1.flokkur, 2.flokkur og ungmennaflokkur A-flokkur Unglingaflokkur og barnaflokkur

Reglur í liðakeppni Skagfirsku mótaraðarinnar
Liðin þurfa að hafa nafn og sérkenni þannig að liðin þekkist. Lágmark 3 í liði en annars er fjöldi í hverju liði ótakmarkaður. Knapar verða að vera í sama liðinu allt tímabilið, bannað er að skipta um lið á miðju tímabili. Í upphafi tímabils verður hver og einn knapi að velja sér hvort hann ætli að keppa í 1. eða 2. flokk út mótaröðina.
3 efstu knapar í forkeppni í hverri grein í hverju liði telja til stiga. Eingöngu forkeppni telur til stiga í liðakeppni.

Stigagjöf
1. sæti = 20 stig
2. sæti = 18 stig
3. sæti = 16 stig
4. sæti = 14 stig
5. sæti = 12 stig
6. sæti = 10 stig
7. sæti = 9 stig
8. sæti = 8 stig
9. sæti = 7 stig
10. sæti = 6 stig
11. sæti = 5 stig
10 sæti = 4 stig
11 sæti = 3 stig
12 sæti = 2 stig
13. sæti og niður úr fá 1 stig

Hver knapi má koma með fleiri en einn hest í hverja grein, en aðeins einn hestur telur til stiga

Ef spurningar vakna má hafa samband við Guðmund Þór í netfang: [email protected] eða í síma: 896-6887

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link