“Við teflum djarft”
Það er nóg um að vera hjá Teiti Árnasyni þessa dagana en hann starfar á Hvoli og Ingólfshvoli í Ölfusi en um helgina stefnir í mikla hestaveislu í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli. Á föstudagskvöldið er lokakvöld Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum þar sem Teitur er í toppbaráttunni í einstaklingskeppninni og lið hans Top Reiter er sem stendur efst í liðakeppninni. Á laugardagskvöldið er síðan Stóðhestaveislan þar sem Teitur er sýningarstjóri. Blaðamaður Eiðfaxa tók með honum einn kaffibolla í dag og tók stöðuna.
“Við leggjum allt undir fyrir lokakvöld deildarinnar. Ég fer með Takt frá Vakurstöðum í töltið og ég á eftir að ákveða mig 100% hvaða skeiðhross ég ætla með en það verður ákveðið í dag. Við teflum djarft. Við ætlum að sækja og ég lofa stemningu hérna á föstudagskvöldið,” segir Teitur sem er vel stemmdur fyrir kvöldinu og gerir ráð fyrir að liðið sé það líka. “Við stefnum á að gera okkar besta. Ég held við séum öll mjög vel undirbúin og ég vænti þess að allir innan liðsins leggi sig fram og sýni sínar bestu hliðar,” bætir hann við.
Eins og áður sagði verður Stóðhestaveislan á laugardagskvöldið og er uppselt á veisluna en verið er að vinna í því að bæta við sætum. Hvernig sér sýningarstjórinn kvöldið fyrir sér? “Þeir sem hafa tryggt sér miða munu ekki sjá eftir því. Þetta verður þvílíka gæðingaveislan. Frábærir hestar, bæði sem hafa ekki sést áður og svo aðrir sem eru þekktari. Ég held þetta verði frábær helgi hérna á Ingólfshvoli og hvet alla til að mæta,” segir Teitur.
Framundan eru kynbótasýningar og Landsmót og aðspurður hvernig Teitur leggi upp vorið telur hann sig og, Eyrúnu Ýr Pálsdóttur, sambýliskonu sína, vera gríðarlega vel hestuð. “Við ætlum að tefla alls staðar fram sterkum hestum, í a flokk, í b flokk í íþróttakeppnina og á kynbótabrautina. Við erum með nokkur mjög góð hross en þetta verður að fá að skýrast þegar vorið kemur. Við erum búin að halda okkur á tánum í allan vetur og það verður áfram þannig. Við erum að sækja,” bætir hann við. Aðspurður út í þá nýjung að bæta íþróttakeppninni við Landsmótið líst honum vel á þá nýbreytni. “Við vitum öll að íþróttakeppnin er ofboðslega vinsæl og hef ég alltaf verið talsmaður hennar. Ég er líka talsmaður gæðingakeppninnar og ég hvet gæðingadómarafélag Íslands að koma gæðingakeppninni inn á Íslandsmót. Ég vil hafa a og b flokk á Íslandsmóti á hverju ári, ekki bara annað hvert ár á Landsmóti. Höldum áfram að bæta þær greinar samhliða íþróttagreinunum. Við eigum svo fjölbreytta hesta og þeir eiga ekki allir að vera eins. Ég held það sé lykilatriði að við reynum að gera báðum þessum keppnisformum hátt undir höfði,” segir hann að lokum og bætir við að hann hlakki til að gleðjast með hestamönnum í Ölfushöllinni um helgina.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH