Viðburðardagatal Sóta
Viðburðardagatal Sóta á Álftanesi er komið út. Að þessu sinni prýðir dagatalið myndir af karlmönnum í félaginu…
við hinar ýmsu aðstæður sem viðkemur hestamennsku s.s. járningar, tamningar, keppni og ferðamennsku. Myndirnar eru allar teknar í lok desember og máttu strákarnir stunda fyrirsætustörf í ískulda en þeir fórnuðu sér fyrir félagið sitt og stóðu sig eins og hetjur. Þeir eru á öllum aldri en ljóst er að Hestamannafélagið Sóti á flottustu strákana! Allir viðburðir í félaginu eru síðan merktir inn á dagatalið. Dagatalið er til sölu á kr. 1.500.- og er í stærðinni A-3.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH