Vígar frá Vatni með þrennu
Gæðingamót Sóta var haldið á velli félagsins á Álftanesi á laugardaginn að er fram kemur í frétt frá hesamannafélagnu.
„Mótið fór vel fram, var stutt en skemmtilegt. Sá mikli gæðingur, Vígar frá Vatni sigraði B-flokinn þriðja árið í röð og var mál manna að hann hafi aldrei verið betri en nú enda einkunnin 8,65! Í fyrsta sinn var keppt í C-flokki og vonandi verða fleiri með næst því þetta er sniðug nýjung. Sótafélagar buðu uppá gómsætt kaffihlaðborð í kaffihléi.
Mótanefnd þakkar öllum sem komu á einhvern hátt að mótinu, þ.e.a.s. keppendum, dómurum og sjálfboðaliðum fyrir vel unnin störf. Öllum gestum er þakkað kærlega fyrir komuna.“
Úrslit fóru þannig:
Pollaflokkur;
1. sæti Helena Rán Gunnarsdóttir, Mána, 7 ára á Nótt frá Brú
1. sæti Snædís Ólöf Andrésdóttir, Sóta, 8 ára á Bárði frá Sveinskoti
Barnaflokkur
1. sæti – Glódís Líf Gunnarsdóttir, Mána, á Geysi frá Læk, 8,30
Unglingaflokkur
1. sæti – Kristín Hermannsdóttir, Spretti, á Sprella frá Ysta-Mó, 8,18
2. sæti – Margrét Lóa Björnsdóttir, Sóta, á Breka frá Brúarreykjum, 7,98
3. sæti – Birna Filippía Steinarsdóttir, Sóta, á Kolskeggi frá Laugabóli, 7,90
4. sæti – Ásdís Agla Brynjólfsdóttir, Sóta, á Viðju frá Þingeyri, 7,43
Ungmennaflokkur
1. sæti Ingibjörg Rut Einarsdóttir, Sóta, á Mekki frá Álfhólum 7,99
B-flokkur
1. sæti – Snorri Dal, Sóta, á Vígari frá Vatni, 8,65
2. sæti – Anna Björk Ólafsdóttir, Sóta, á Smyrli frá Kirkjuferjuhjáleigu, 8,42
3. sæti – Kristín Ingólfsdóttir, Sörla, á Orustu frá Leirum, 8,42
4. sæti – Einar Geir Hreinsson, Sóta, á Krumma frá Álfhólum 8,19
5. sæti – Ingibjört Rut Einarsdóttir, Sóta, á Kvisti frá Álfhólum, ógilt
C-flokkur
1. sæti – Linda Helgadóttir, Mána, á Gyðju frá Læk, 7,88
Myndir frá mótinu má finna á Facebook síðu Hestamannafélagins Sóta.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH