Suðurlandsdeildin Vöðlar/Snilldarverk sigurvegarar í Suðurlandsdeild Eques 2026

  • 8. apríl 2026
  • Fréttir

Sigurlið Vöðla/Snilldarverks

Frábærum vetri lokið í Rangárhöllinni

Lokamótið í Suðurlandsdeild Eques fór fram í gærkvöldi. Að loknu spennandi keppnistímabil var það lið Vöðla/Snilldarverks sem stóð uppi sem sigurvegari eftir harða baráttu. Keppnistímabilið í ár var merkilegt fyrir margra hluta sakir og ekki síst það að í ár var tíunda skiptið sem deildin er haldin.

Á lokamótinu hófst keppni á flugskeiði í gegnum höllina þar sem Ásmundur Ernir Snorrason á Núma frá Árbæjarhjáleigu II var fljótastur atvinnumanna og Hinrik Ragnar Helgason á Stirni frá Laugavöllum fljótastu áhugamanna. Í skeiðinu voru þau jöfn að stigum lið Bakkakots og lið Krappa.

Lið Bakkakots og Krappa voru jöfn í skeiðkeppninni

Í töltkeppninni var stigahæsta liðið Vöðlar/Snilldarverk. Í tölti áhugamanna stóð efst Soffía Sveinsdóttir á Skuggaprinsi frá Hamri með 6,89 í einkunn og í tölti atvinnumanna var það Hulda Gústafsdóttir sem fór með sigur á Flautu frá Árbakka með 7,61 í einkunn en Ólafur Ásgeirsson varð annar með sömu einkunn. Stigahæsta lið kvöldsins í töltinu var lið Vöðla/Snilldarverks.

Lið Vöðla/Snilldarverks á toppnum

Lið Vöðla/Snilldarverks skipa atvinnumennirnir Ásmundur Ernir Snorrason, Stella Sólveig Pálmarsdóttir og Ólafur Ásgeirsson. Áhugamenn liðsins eru Åsa Ljunberg, Hannes Brynjar Sigurgeirsson og Elín Hrönn Sigurðardóttir.

Lið Vöðla/Snilldarverks átti magnaðan vetur. Liðsmenn þeirra tóku allir þátt í deildinni.
– Í fjórgangi urðu atvinnumenn liðsins í 3.-4. og 6. sæti og áhugamenn í 1. og 8. sæti.
– Í fimmgang urði atvinnumenn liðsins 5. og 17. sæti.
– Í T2 varð atvinnumaðurinn 7.-8. sæti og áhugamaðurinn í 2. sæti.
– Í Parafimi varð parið í 3. sæti.
– Í skeiði varð atvinnumaðurinn í 1. sæti og áhugamaðurinn í áhugamaðurinn í 6. sæti.
– Í tölti urðu atvinnumenn liðsins í 3. og 4. sæti og áhugamenn liðsins í 3. og 10. sæti.

Gríðarlega flottur og jafn árangur sem skilaði liðinu til sigurs og óskum við þeim innilega til hamingju!

Stigahæstu knapar kvöldsins komu báðir úr liði Árbakka/Árbæjarhjáleigu II en það var í flokki atvinnumanna Gústaf Ásgeir Hinriksson og flokki áhugamanna Arney Ólöf Arnarsdóttir.

Heildarniðurstöður liðakeppninnar voru eftirfarandi:
Sæti Lið Stig
1. Vöðlar/Snilldarverk 307
2. Árbakki/Árbæjarhjáleiga 294,5
3. Miðkot/Skeiðvellir 255
4. Bakkakot 246
5. Krappi 239,5
6. Raflagnaþjónusta Selfoss 231,5
7. Hestefli 230
8. Húsasmiðjan 226,5
9. Kastalabrekka 188
10. Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás 180,5
11. Wicked viking 175,5

Stigakeppni einstaklinga – Atvinnumenn
Sæti Knapi lið Stig
1. Gústaf Ásgeir Hinriksson Árbakki/Árbæjarhjáleiga 99,5
2. Ásmundur Ernir Snorrason Vöðlar/Snilldarverk 91,5
3. Sigurður Sigurðarson Krappi 87
4. Malin Anderson Wicked viking 66,5
5. Ólafur Þórisson Miðkot/Skeiðvellir 64,5
6. Jón Ársæll Bergmann Bakkakot 63,5

Sex stigahæstu knapar í flokki áhugamanna
Stigakeppni einstaklinga – Áhugamenn
Sæti Knapi lið Stig
1. Arney Ólöf Arnardóttir Árbakki/Árbæjarhjáleiga 79,5
2. Pernilla Göransson Húsasmiðjan 77
3. Þórdís Sigurðardóttir Raflagnaþjónusta Selfoss 68,5
4. Rúnar Freyr Rúnarsson Bakkakot 63,5
5. Sarah Maagaard Nielsen Miðkot/Skeiðvellir 61,5
6. Heiðdís Arna Ingvarsdóttir Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás 60

Nánari niðurstöður úr deildinni má nálgast í HorseDay appinu.

Stjórn deildarinnar vill þakka öllum sem komu að deildinni hvort sem það voru áhorfendur, styrktaraðilar, sjálfboðaliðar eða dómarar.

Þau Gústaf Ásgeir og Arney Ólöf voru stigahæstu knapar deildarinnar

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link