Von á skeiðveislu á Hellu laugardaginn 10. júní

  • 4. júní 2023
  • Fréttir
Opið gæðingamót Geysis og úrtaka fyrir Fjórðungsmót Austurlands

Samhliða opinni Gæðingakeppni Geysis sem jafnframt er úrtaka Geysis fyrir fjórðungsmót á Austurlandi verður haldin skeiðveisla seinnipart laugardags 10. júní!

Ef langtíma veðurspáin sannreynist þá verður á Hellu 14°C og 2 m/s sem eru einar bestu aðstæður sem skapast geta í skeiðkappreiðum hérlendis.

Opið verður fyrir skráningu til kl. 23:59 í kvöld, sunnudaginn 4. júní!

Boðið verður uppá eftirfarandi flokka:

  • – A flokkur (gæðingaflokkur 1 og 2)
  • – B flokkur (gæðingaflokkur 1 og 2)
  • – A flokkur Ungmenna
  • – B flokkur Ungmenna
  • – Unglingaflokkur
  • – Barnaflokkur
  • – Gæðingatölt Fullorðins-, ungmenna-, unglinga- og barnaflokkur)
  • – 250m skeið
  • – 150m skeið
  • – 100m skeið

Sjáumst á Rangárbökkum um næstu helgi!

Nánari upplýsingar um viðburðinn: https://www.facebook.com/events/920371329078101

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link